155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:34]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Það sem er sagt stundum með einhverjum svona fögrum orðum þar sem er raunverulega verið að tala almennt, ég heyri um aðhald á tekjuhliðinni og svo þetta hér sem hv. þingmaður segir, þetta er bara vilji um skattahækkanir. Þetta er raunverulega — að tala um ófjármagnaðar skattalækkanir eða að eitthvað sé ófjármagnað. (Gripið fram í.) Við höfum bara verið með ákveðna aðferðafræði líka, að tala um að styrkja efnahagslífið, atvinnulífið, á meðan ekki er of hart farið fram gegn því. Það er náttúrlega munurinn á vinstri og hægri stefnunni í hnotskurn, að halda meira eftir hjá fólkinu í landinu svo það geti ráðstafað sínu, sem það fær fyrir sitt strit. Ég held að það væru náttúrlega flest Evrópuríki mjög sátt við þá stöðu sem er uppi á Íslandi í ríkisfjármálum, hvar við stöndum. En ef þetta er aðallega umræðan þá er nálgunin náttúrlega orðin svolítið pólitískt, hvar menn standa í pólitík. Við búum til velferðarkerfi með sterku, öflugu atvinnulífi. Við ætlum að byggja upp samkeppnishæfni í þessu landi og það er verðmætasköpunin þar sem atvinnulífið skapar og tryggir síðan lífskjörin. Síðan hjálpum við öllum þeim sem þurfa á að halda með sem öflugustum hætti. Það hefur verið okkar nálgun, mín nálgun, hvernig maður sér þessa hluti fyrir sér. Ef það á alltaf að skattleggja allt í drep þá verður nú lítið eftir af verðmætasköpuninni í landinu. Hver á að hafa áhuga á að standa t.d. í atvinnurekstri með þeim hætti? Og þegar alltaf er verið að tala út frá þessum hætti, aðhald með þessum (Forseti hringir.) hætti, það er bara verið að tala um skattahækkanir og ekkert annað, þá ætti það (Forseti hringir.) bara að vera öllum fullljóst út á hvað þetta gengur, þetta tal.