155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:49]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er kannski afleiðing af hönnuninni í þessum sal, við snúum alltaf baki í ráðherrana þannig að það sem við segjum berst frá þeim, en ég held að ráðherra hafi ekki alveg heyrt það sem ég sagði. Ég sagði ekki að það ætti að setja vextina í fjárlagafrumvarpinu, öðru væri nú nær. Nei. Það sem ég sagði var að þrýstingurinn á vöxtum hefur að stóru leyti verið vegna skorts á húsnæði. Framboð húsnæðis er ekki nóg. Það vantar að gera stórátak í því að húsnæði sé byggt, en það þarf líka að sjá til þess að það húsnæði sem byggt er renni ekki beint í vasa þeirra sem eiga nóg fyrir, þeirra sem eiga ekki bara eina íbúð fyrir heldur fleiri. Það er ekki fólkið sem á að hafa forgang á nýtt húsnæði sem er ætlað að taka á þeim vanda sem er í samfélaginu í dag.

Það sem við í fjárlaganefnd þurfum síðan að gera er einmitt að spyrja Seðlabankann hvaða áhrif hann telji þetta frumvarp hafa á sínar væntingar. Ég ætla ekki að slá því föstu hér. Ég er ekki með greiningardeild í vasanum eins og Seðlabankinn. Það er hins vegar ákveðin saga sem það segir að í þeirri glæru í kynningu fjármálaráðherra sem snerist um að sýna hvernig staða fólks á húsnæðismarkaði myndi batna á næsta ári, voru ekki nefndar aðgerðir eða nýjar aðgerðir ríkisstjórnarinnar heldur vaxtastig sem sett er af Seðlabankanum.