155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:51]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er einmitt það sem frumvarpið styður, að þessar spár sem eru opinberar raungerist. Við erum að sýna fram á hver afleiðingin yrði og hún er þessi, nákvæmlega. Þegar hv. þingmaður var að nefna það að hér væri verið að leggja sérstaka áherslu á verðbólgutölur, þessar samræmdu vísitölur, þ.e. án húsnæðisliðar og einskiptisliða, að kjarnavísitalan væri komin niður í 3,5 eða 3,6%, þá er það bara staðreynd. Og ef við horfum á þá vísitölu aftur í tímann, til 2015, þá höfum við legið þar í kringum 2,5%, litlu hærra en Svíþjóð og Danmörk, en undir Noregi sem hefur verið með 3,3%, enda hefur gengi norsku krónunnar gefið nokkuð eftir. Evrulandið Finnland er talsvert aftar enda eru þeir búnir að glíma við samdrátt eftir bankakrísuna hjá þeim upp úr 1990. Það sem ég er að segja er að þetta er gerlegt, það sem við erum að gera. Tímalínan er hins vegar þessi, að á þremur árum fór verðbólgan í 10,2%, í febrúar 2023. Hún er komin niður í 6%, stefnir í að fara niður undir 5% í lok þessa árs samkvæmt nýjustu tölum greiningardeilda sem eru í samræmi við spá Seðlabankans. Og á næsta ári, samkvæmt spá Seðlabankans, gangi þetta eftir og þær áætlanir sem við erum með í þessu fjárlagafrumvarpi, verður verðbólgan 3,5% með húsnæðisliðnum.

En ég er sammála hv. þingmanni að það eru húsnæðismálin sem við þurfum að taka á. Hann kallaði eftir pólitískri forystu. Hvað var það annað en pólitísk forysta að setja hér á síðasta ári nýja húsnæðisstefnu og reyndar fyrstu húsnæðisstefnuna, og leggja fram frumvörp um ólíka hluti eins og húsaleigumarkað, (Forseti hringir.) uppbyggingarheimildir, heimila lífeyrissjóðunum að fara inn á leigumarkaðinn o.fl., fjölmörg frumvörp sem voru samþykkt (Forseti hringir.) á síðasta þingi einmitt í þessum tilgangi? Hvað var það annað en pólitísk forysta, hv. þingmaður?

(Forseti (ÁsF): Forseti minnir ræðumenn á að ræðutími er tvær mínútur.)