155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:54]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að lengja þetta mál mikið lengur en mér finnst eins og ég sé að hitta eitthvað illa á hæstv. ráðherra, t.d. þegar hann bendir á að það sé bara staðreynd að vísitala án húsnæðisliðar sé lægri en vísitala með húsnæðislið. Það stangast ekkert á við það sem ég sagði hér í minni ræðu. Ég lék meira að segja línuritin þar sem ég sýndi hvernig þetta væri mishátt. Þetta er gerlegt, segir hæstv. ráðherra. Þetta er náttúrlega sama ríkisstjórnin og hefur verið hér í Stjórnarráðinu síðustu sjö ár. Stór hluti af vandanum er búinn til, ef ekki búinn til þá alla vega aukinn, vegna ákvarðana ríkisstjórnarinnar eins og t.d. að styrkja eftirspurnarhliðina á húsnæðismarkaði á sínum tíma, eins og t.d. að koma ekki böndum á húsnæðismarkaðinn miklu fyrr. Það er of lítið framleitt af nýju húsnæði. Of stór hluti þess fer í hendur fólks sem er ekki í húsnæðisþörf. Þetta er staða sem ríkisstjórnin þarf ekki bara bregðast við heldur að átta sig á að hún ber nokkra ábyrgð á. Það er pínu kúnstugt að segja að nú séu hlutirnir alveg að koma þegar ríkisstjórnin hefur haft þetta langan tíma í Stjórnarráðinu til að láta þá koma. Þeir eru enn ekki komnir.