155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:56]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég er kannski aðeins á svipuðum nótum og hæstv. fjármálaráðherra í andsvari við hv. þingmann. Hlutverk ríkisfjármála er náttúrlega að veita aðhald í ríkisfjármálum gagnvart verðbólgustiginu og halda niðri vöxtum en þetta er bara hluti af dæminu. Við erum með Seðlabanka sem fer með meginvexti landsins og það sem helst er kannski litið til eða það sem flestir tala um eru stýrivextir. Þetta er það sem við erum að fást við í stóru myndinni. En síðan er náttúrlega vinnumarkaðurinn og á sama tíma, af því að við vorum að ræða Covid-árin og hagvöxtinn í framhaldinu og annað, voru gerðir mjög miklir og dýrir samningar á vinnumarkaði. Það varð mikil kaupmáttaraukning á þessum Covid-árum, sem er einstakt hvert sem litið er á heimsvísu. Þetta er hluti af því sem við erum að fást við hér. En aðhaldið kemur frá — það eru Seðlabankinn, ríkissjóður og vinnumarkaðurinn sem fást við þetta, við erum ekki ein í þessari baráttu. En við erum, og það sýnir sig, að vinna með þeim og það er það sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og fjármálaráð benda t.d. á í umsögnum við fjármálaáætlun í vor, eins og ég kom inn á áðan, að hér sé aðhald. Það er kannski hægt að líkja því sem við erum að fást við í ríkisfjármálum við olíuskip. Það eru engar skyndilausnir, það eru engar töfralausnir. Þetta er bara vinna og hún tekur tíma. Og allar breytingar, þegar þú ert að stýra olíuskipinu, taka sinn tíma. En það er ekki hægt að telja fólki trú um að það séu einhverjar töfralausnir til í þessum málum. Svo höldum við áfram í seinna andsvari.