155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[11:58]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Þegar hv. þingmaður talar um kjarasamninga á vinnumarkaði þá fæ ég á tilfinninguna að við séum enn einu sinni komin á þann stað að kenna almennu launafólki um verðbólguna, kenna verkafólki um það að staðan er eins og hún er. Tölurnar styðja það bara engan veginn. Ríkisstjórnin hefur gengið ansi greitt fram í hagsmunagæslu fyrir ríkasta fólkið í landinu. Það er pólitísk ákvörðun. Þar er þenslan. Þar er þrýstingurinn á húsnæðismarkaði vegna þess að þetta er fólkið sem hefur milljónir aflögu til að kaupa sér aukaíbúð. Þetta er fólkið sem hefur verið að fyrirframgreiða arf til barna sinna til þess að þau geti keypt sér íbúð eða íbúðir. Árið 2021, ég átti bara ekki nýrri tölur á lager, þá jókst auður ríkustu 0,1% Íslendinga — þetta er lítill hópur, þetta eru 200–300 manns, 244 heimili — um 40 milljarða. Sama ár tók sá hópur til sín 36 milljarða í fjármagnstekjur. Frá 2020–2021 jukust tekjur þessa hóps úr 54 milljörðum í 94 milljarða. Bara af því að hv. þingmaður nefndi kjarasamninga þá held ég að rétt sé að við höldum þessu til haga. Það eru aðrir hópar sem bera ríkari ábyrgð á verðbólgu í landinu sem ekki eru skattlagðir með sama hætti og vinnandi fólk. Lítum þangað.