155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:03]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Forseti. Hv. þingmaður vill alltaf ræða stærri myndina. En ég vil meina að það sé varla mikið stærri mynd í fjárlögum en nákvæmlega það hvernig við skiptum byrðunum í því sem hver leggur til samneyslunnar. Mér finnst það vera hluti af stóru myndinni að útgerðin hafi allt of lengi komist hjá því að greiða eðlileg auðlindagjöld af sameiginlegri fiskveiðiauðlind þjóðarinnar. Á síðustu árum hefur veiðigjaldið kannski rétt hrokkið fyrir því eftirliti sem þarf að sinna af hálfu Landhelgisgæslunnar með fiskveiðilögsögunni þannig að þetta eru eiginlega ekki auðlindagjöld heldur bara þjónustugjöld sem eru ekki einu sinni fullfjármögnuð. Ég nefndi hér ríkasta 0,1% Íslendinga, ekkert af tilviljun heldur vegna þess að þeirra staða hefur verið að batna stjarnfræðilega mikið á síðustu árum. Það er ekki eðlilegt. Þá er stóra myndin eitthvað skökk ef við höfum hannað kerfið með þeim hætti að auður safnast með ótrúlegum hraða á fárra hendur á sama tíma og það er búið að setja opinber fjármál í slíka spennitreyju að ekki er hægt að standa straum af eðlilegri þjónustu á mörgum sviðum. Það er stóra myndin, herra forseti, hvort við ætlum að reka ríkissjóð okkar þannig að hann skili velsæld fyrir okkur öll í landinu eða hvort við ætlum að halda áfram, eins og Sjálfstæðisflokkurinn kallar greinilega eftir, einhverri varðstöðu um allra ríkustu kjósendurna, um allra auðugustu atvinnugreinarnar. Það er stóra málið.