155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:05]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Ég fer ekki í grafgötur með það hversu þungbært það er fyrir þjóðina alla að vextir og verðbólga séu eins há og raun ber einni. Þenslan, orsakavaldur verðbólgunnar, er ekki síst afleiðing af því hvernig við kusum að koma okkur í gegnum Covid-faraldurinn þar sem áherslan var á verulega aukin útgjöld hins opinbera. Þetta er þungt en var jú nauðsynlegt til að koma okkur standandi út úr kófinu á sínum tíma. Nú er ekki annað í stöðunni en að draga áfram saman seglin til að tryggja hagkerfinu farsæla lendingu út úr þessu verðbólgutímabili.

Sum kalla hér eftir meira aðhaldi á meðan önnur vilja auka útgjöldin. Það sem mestu máli skiptir í þeirri umræðu allri er að þrátt fyrir aðhald er verið að tryggja að það sé ekki á kostnað grunninnviða okkar samfélags, heilbrigðis-, mennta- og félagslegu kerfanna. Þau ætlum við að verja eins og gert hefur verið á þessu kjörtímabili öllu.

Eitt það sárasta við núverandi ástand er staða ungs fólks á húsnæðismarkaði en vaxtabyrðin leggst hvað þyngst á þau. Hækkun banka á vöxtum húsnæðislána í gær er óboðleg aðgerð og á engan hátt í takt við það sem við erum öll að vinna að; að standa vörð um heimilin, fyrirtækin og fjölskyldurnar í landinu.

Hér skiptir máli að margar þeirra aðgerða sem verið er að ganga í til stuðnings við kjarasamninga sem undirritaðir voru í vor eru einmitt ungu fólki til hagsbóta. Ber þar helst að nefna hækkaðar húsnæðis- og barnabætur, gjaldfrjálsar skólamáltíðir og vaxtabætur. Allt til þess gert að létta ungu barnafólki róðurinn. Það er vinstri, það er félagshyggja og það er það sem heilbrigt og öflugt samfélag gengur út á, að standa vörð um fjölskyldurnar.

En það þarf að byggja meira. Okkur fjölgar hratt og náttúruhamfarir á Reykjanesi sem valdið hafa ófyrirséðum afleiðingum á stöðu húsnæðismarkaðar hafa þyngt sporin svo um munar. Stjórnvöld hafa þó staðið að baki þriðjungi þeirrar uppbyggingar íbúðarhúsnæðis sem byggt hefur verið undanfarin ár og innviðaráðherra hefur boðað enn frekari aðgerðir og áframhaldandi stuðning við húsnæðismarkaðinn. Stjórnvöld munu áfram styðja við óhagnaðardrifin húsnæðisfélög með það að markmiði að auka framboð leiguíbúða fyrir tekjulægri heimili í gegnum stofnframlög, auk þess sem hlutdeildarlán styðja við fyrstu kaupendur íbúðarhúsnæðis með lægri tekjur. Þetta er gríðarlega mikilvægt til þess að stýra okkur að heilbrigðari húsnæðismarkaði sem tryggir öllum þak yfir höfuðið, hvort heldur er á leigumarkaði eða í eigin húsnæði.

Landsbyggðin er svo sannarlega ekki undanskilin á vakt VG. Verkefnið Tryggð byggð heldur áfram en það er samstarfsvettvangur um húsnæðisuppbyggingu á landsbyggðinni. Greint verður hvar skortur er á leiguhúsnæði og hvað stendur atvinnuuppbyggingu á landsbyggðinni fyrir þrifum og unnið út frá niðurstöðum þeirrar greiningar í átt að betri húsnæðismarkaði á landsbyggðinni. Það er áskorun hverju sinni að koma fram með mikilvægar aðgerðir sem nýtast þeim best sem mest þurfa á því að halda. Við lærum af reynslunni og stöndum vörð um þau sem þess þurfa. Þannig er ljóst að sum þeirra úrræða sem stjórnvöld hafa komið í gagnið hafa skipt hina tekjulægstu sköpum og því þarf að styðja áfram við þau úrræði. En stuðningurinn ratar ekki alltaf til þeirra sem þurfa á honum að halda heldur til þeirra sem hafa það gott og þarfnast stuðningsins ekki, þótt öllum þyki gott að fá meira hverju sinni. Auðsöfnun og sérhagsmunir eiga aldrei að vera í forgangi og mikilvægt að beina fjármunum hins opinbera til þeirra sem mest þurfa á því að halda.

Fyrrnefndir einkahagsmunir hafa komið leigumarkaði landsins í grafalvarlega stöðu. Það er fullkomlega óeðlilegt að fjársterkir aðilar geti sankað að sér eignum og blásið stjórnlaust upp leiguverðið. Í stefnu okkar í VG tölum við um leiguþak og tel ég afar brýnt að því verði komið á sem allra fyrst. En á meðan leiguþak er ekki komið til framkvæmda er ánægjulegt að sjá aukin framlög til húsnæðisbóta en þau aukast um 2,5 milljarða kr. eða 28% frá fjárlögum 2024. Grunnfjárhæðir húsnæðisbóta hækkuðu um 25% þann 1. júní síðastliðinn ásamt því að bætt var sérstaklega í stuðning við stærri fjölskyldur.

Virðulegi forseti. Framlög til samgöngumála aukast um samtals 9 milljarða kr. eða 17%. Ber þar helst að nefna aukin framlög til uppbyggingar samgönguinnviða allra ferðamáta á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við framkvæmdaáætlun samgöngusáttmálans. Tímabærar og mikilvægar aðgerðir sem nýtast okkur öllum, hvort heldur þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu, gestum okkar eða þeim sem sækja hingað lífsnauðsynlega þjónustu sem enn er ekki tryggð á landsbyggðinni. Mikilvægt er að nefna fækkun einbreiðra brúa sem mun halda áfram en stefnt er að því að þeim fækki um samtals fimm á árinu 2025, bæði á hringveginum og utan hans. Einbreiðar brýr eru dauðagildrur þjóðveganna og óboðlegt að enn séu allt of margar slíkar í landinu. Þessu erum við að breyta.

Annað sem er engu samfélagi samboðið er sú skelfilega staða að víða um land er börnum ekið yfir heiðar og fjallvegi í öllum veðrum á veturna til þess að koma þeim í skóla. Það er almennt enginn fullorðinn um borð með þeim annar en bílstjórinn sem þarf að einbeita sér að akstrinum við erfiðar aðstæður. Það er fagnaðarefni að hæstv. innviðaráðherra ætlar að efla vetrarþjónustu um allt land til að auka öryggi þessara barna og ég fagna því af einlægni.

Virðulegi forseti. Sameiginlegar auðlindir eru grundvöllur búsetu þjóðarinnar um aldir og ábyrg nýting þessara auðlinda er grundvöllur efnahagslífsins. Sanngjarnt gjald af sjávarútvegi er mikilvæg stoð. Það er fagnaðarefni að nú er stefnt að enn hærra fiskeldisgjaldi og eins hyggst hæstv. matvælaráðherra leggja fram frumvarp um hækkun veiðigjalda. Ábyrg ráðstöfun fjármuna úr sjávarútvegi og fiskeldi nýtist til að mynda í rannsóknir sem eru öllum sem að þessum geirum koma til hagsbóta. Matvælastofnun fær til að mynda aukin framlög til að auka eftirlit með fiskeldi í sjó og tryggja fullnægjandi eftirlit með skráningum og innra eftirlit sjókvíaeldis fyrirtækja. Hafrannsóknastofnun er efld rausnarlega með 230 millj. kr. framlagi sem kemur til viðbótar 180 millj. kr. framlagi í fjárlögum 2024 en þar af fara 50 milljónir til að styrkja verkefni stofnunarinnar á sviði burðarþolsmats fjarðarkjarna, þar með talið eldissvæðaskiptingu, mat á umhverfisáhrifum sjókvíaeldis, áhættumat á erfðablöndun og rannsóknir á dreifingu laxa og fiskilúsar. Kemur sú hækkun til viðbótar 20 millj. kr. framlagi til að fjölga stöðugildum eftirlitsmanna Fiskistofu. Á vakt VG er verið að auka álögur á stórfyrirtæki í sjávarútvegi og fiskeldi og stórefla eftirlit með starfsemi þessara fyrirtækja.

Virðulegi forseti. Á seinustu áratugum hefur íslenskt samfélag tekið miklum breytingum. Við erum ekki það einsleita samfélag sem við vorum frá landnámi og allt fram eftir 20. öldinni. Nú erum við fleiri, ólíkari og með fjölbreyttari hæfileika á fleiri sviðum. Sum í þessum sal og víðar í samfélaginu vilja láta að því liggja að fólk á flótta sé uppspretta allra áskorana sem íslenskt samfélag stendur frammi fyrir. Þetta er auðvitað fásinna og byggt á áróðri sem stenst enga skoðun. Fólk á flótta er ekki stærsti og viðamesti hlutinn af þeim hópi innflytjenda sem auðgar samfélag okkar og má í því samhengi minna á að við Íslendingar eigum einmitt rætur okkar að rekja til flóttafólks sem leitaði betra lífs. Meiri hluti innflytjenda er fólk sem kemur hingað í atvinnuleit eftir hefðbundnum leiðum til að halda uppi grunnstoðum samfélagsins, enda er hér næga vinnu að fá. 80% allra innflytjenda á Íslandi koma frá Evrópska efnahagssvæðinu en við erum líka svo lánsöm að hingað kemur fólk víðar að úr heiminum til að auðga menningu okkar, halda uppi grunnstoðum samfélagsins og skapa hér verðmæti. Fólksflutningar hafa alltaf verið mikilvægur hluti mannkynssögunnar og grundvöllur þess að samfélög lifi af, en í því sambandi er inngilding lykilatriði.

Í frumvarpi til fjárlaga er að finna 400 millj. kr. fjárframlag vegna nýrra verkefna hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneyti sem byggja á heildarsýn ríkisstjórnarinnar í málefnum flóttafólks og innflytjenda frá því í febrúar fyrr á þessu ári. Aðgerðir ráðuneytisins lúta m.a. að því að auka íslenskukennslu fyrir innflytjendur og er það í takt við nýbirta úttekt um (Forseti hringir.) innflytjendur á Íslandi sem ráðuneytið fékk OECD til að vinna.

Ég náði ekki að klára nema rétt helminginn af ræðu minni (Forseti hringir.) en það er margt gott í þessu fjárlögum. Höldum áfram, vinnum í sátt að betra samfélagi fyrir okkur öll.