155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir andsvarið. Ég er honum sammála um að húsnæðismarkaðurinn er mikil áskorun. Það er ekki síst vegna mikillar fólksfjölgunar, hvað okkur er að fjölga hratt. Það hefur auðvitað með atvinnustefnu að gera. Hér er starfandi heilt ráðuneyti sem á t.d. að móta stefnu í kringum ferðaþjónustu. Birtingarmyndirnar eru mjög dramatískar hér á höfuðborgarsvæðinu. Það hefur verið í tísku að benda á borgina í því sambandi og talað um framboðsvanda. Það má líka horfa á hlutina þannig að hér sé um eftirspurnarvanda að ræða, fjölgunin hefur verið slík. Það má líka spyrja sig í samhengi við húsnæðismarkaðinn að byggingamarkaðurinn fór í frost fyrir framan nefið á okkur. Hvar voru varnir ríkisstjórnarinnar gagnvart þessum aðgerðum? Þegar ríkisfjármálum er ekki beitt gegn verðbólgunni hækka vextirnir. Þegar ríkisstjórnin tekur ekki aktíft hlutverk í baráttunni gegn verðbólgu þá gerast þessir hlutir og við sjáum afleiðingarnar blasa við í dag.

Ég hef áhuga á að heyra sjónarmið ráðherra varðandi vextina, hvort honum finnist vaxtakjör íslenska ríkisins vera sanngjörn og eðlileg og hvers vegna við, þjóð sem ekki skuldar meira en hún gerir, njótum þeirra greiðslukjara sem við gerum í dag. Hverjar telur ráðherrann vera skýringuna á því? Það skyldi þó ekki vera að það hafi eitthvað með gjaldmiðilinn okkar að gera. Og ég set spurningarmerki við að hlusta á fjármálaráðherra landsins stilla upp möguleikunum þannig að ef almenningur vilji stöðugleika þá muni það þýða atvinnuleysi. Þá er nú fyrir fram verið að kasta inn handklæðinu. Fólk á skilið og getur vel sóst eftir stöðugleika án þess að ráðherra mæti hér í púltið með fingurinn á lofti og hóti okkur atvinnumissi ef við fáum stöðugleika.