fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ráðherra mætir ekki hér með puttann á lofti og hótar einu eða neinu. Ráðherra kemur hérna upp og lýsir því að ef við ætlum að ræða stóru myndina, sem sagt kostina við íslensku krónuna og auðvitað galla, en ef við ætlum að ræða það og setja evruna í eitthvert samhengi þá værum við að binda okkur við efnahagsástand í Evrópu, t.d. Þýskalands. (Gripið fram í.) Það er ekki gott ástand þar. Það er enginn hagvöxtur, þeir eru bara að basla, það er búið að vera samdráttur þar í langan tíma. Ef við tökum minni löndin eins og Finnland, sem er Norðurland, þá er það búið að vera að ströggla og það er eina evrulandið. Þar er atvinnuleysi 8–9% og meðal ungs fólks yfir 20% og er búið að vera viðvarandi í áratugi þannig að þetta er ekki patentlausn, hv. þingmaður. Ráðherrann er ekki að hóta neinu. Ég er bara að lýsa staðreyndum. Það þarf að taka umræðna á vitrænum grunni. Kostirnir við krónuna og okkar gjaldmiðil eru að hann vegur og metur, hann hjálpar okkur við að tryggja hærra hlutfall atvinnuþátttöku, minna atvinnuleysi en kostnaðurinn kemur vissulega á móti. Það sem við höfum verið að vinna að er að búa til fleiri stoðir undir efnahagslífið. Ég er á þeirri skoðun að við njótum ekki sanngjarnra kjara einfaldlega í ljósi þess sem hefur gerst, þ.e. við höfum farið frá því á 50 árum að vera með sjávarútveginn sem einu stoð atvinnulífsins, orkan kom síðan inn og ferðaþjónustan, en núna erum við að sjá fleiri stoðir, fimm stoðir, sem eru að koma undir efnahagslífið. Við erum að fara inn í stöðugleika, enda spá bæði OECD, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og fleiri að hagvöxtur á Íslandi til lengri tíma verði um prósentu eða 1,5% meiri en á evrusvæðinu í ESB, í Evrópu. Það eru einhver tækifæri sem við eigum að horfa á. En við þurfum (Forseti hringir.) að taka það samtal við alþjóðaumhverfið af hverju það metur okkur ekki rétt.