155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:36]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Ég tek undir þetta með séreignarsparnaðinn og kom inn á það í minni ræðu að þetta er búið að vera gríðarlega mikilvægt mál frá 2013 sem við Sjálfstæðismenn unnum hart að í kosningabaráttu að fá innleitt. Við þurfum að viðhalda því og finna út úr því hvernig best er að takast á við það. Auðvitað þurfum við að halda hinu sérstaka úrræði sem verður boðað áfram í fjárlaganefnd varðandi unga fólkið og ég held að fjárlaganefnd og ráðherra þurfi aðeins að ná utan um það og taka umræðu í haust sem snýr að þessu.

Það er hægt að koma mjög víða við en grunnatriðið sem mig langaði að koma inn á og ég hef kannski gert það áður, við höfum oft tekið þetta samtal hér í þingsal og þetta kemur fram í fjárlögum núna, að hagvöxtur áranna 2019–2023 er 11%. Ég kom inn á það áðan að Króatía er eina landið í vestrænum heimi sem fer lengra en svo. En í fjármálaáætluninni núna í vor vorum við að taka saman gögnin og árin 2021, 2022 og 2023 var 20% hagvöxtur á þremur árum eftir niðursveiflu upp á 7% þegar ferðaþjónustan fór niður í Covid. Hún er um 8% af landsframleiðslunni, hún kemur til baka og hlutirnir fara af stað vegna þess að það var búið að byggja upp og viðhalda atvinnulífinu. Það var búið að setja mikið inn þar til að komast í gegnum erfiða tíma. Þetta er það sem við erum að fást við og mér finnst mjög takmörkuð umræða hér um hvað við erum að fást við. Það er síðan rétt með mannfjölgunina, 3% á ári eins og var eitt árið — það er gríðarlegt, það er bara heimsmet. Þannig að við erum að fást við mjög marga stóra hluti. En við hljótum alltaf að horfa til áranna 2013–2020, fram að Covid. Þá var 2,4% verðbólga í þessu landi. Það er markmiðið sem við erum að reyna að ná aftur, frá þeim tíma. En síðan byrja þessi áföll, 2019, 2020, 2022 og Grindavíkureldar (Forseti hringir.) í fyrra. Þetta eru ótrúleg tímaskeið. Þannig að mér finnst svolítið ósanngjarnt að tala um 80 mánuðina (Forseti hringir.) fyrir ofan verðbólgumarkmiðið, miðað við fimm áföll í fimm ár.

(Forseti (ÁsF): Ég minni hv. þingmann á að ræðutíminn er tvær mínútur.)