fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir andsvarið. Ég er mjög ánægð að heyra viðbrögð hans og svör varðandi þetta úrræði um nýtingu á séreignarsparnaði. Ég vara mjög við því að það verði tekið út á þessum tímapunkti. Við eigum gögn innan úr fjárlaganefndinni sem ég óskaði eftir á sínum tíma um hvernig lánin væru samsett hjá heimilum landsins. Það er ekki svo langt síðan, tvö, þrjú ár, að um fjórðungur allra lántakenda var með óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum. Auðvitað hefur þessi stabbi flutt sig yfir í verðtryggðu lánin í dag. Fólk á ekki annarra kosta völ. En þegar við skoðum það hvernig verðbólgan og vaxtahækkanir hitta heimilin fyrir er augljóst mál að við erum ekki öll saman í þessu. Þetta hefur ekki bara með tekjur að gera. Auðvitað er það alltaf þannig að þau sem eru með lægstu tekjurnar fá á sig þyngsta höggið og ríkisstjórnin má eiga það að hún hefur tekið skref í þeim efnum. Eftir stendur millistéttin, millitekjufólk sem er kannski með ágætistekjur, kannski með tvennar tekjur á heimilum þar sem eru hjón eða fólk í sambúð. En það breytir ekki því að þar sem fólk er með ung börn er útgjaldastigið hátt, lánið er stórt hlutfall af heimilisbókhaldinu öllu. Fólk er jafnvel með námslán þessu til viðbótar. Manni finnst tímasetningin núna á því að ætla að kippa þessu úrræði úr sambandi ekki góð pólitísk skilaboð af því að við vitum vel að vaxtahækkanirnar og verðbólgan hitta okkur ekki öll jafnt fyrir og að kippa þá úr sambandi úrræðum sem eru að hjálpa millitekjuhópunum finnst mér ekki gott. Ég er því einlæglega glöð að heyra þessi viðbrögð þingmannsins við áhyggjum mínum og ég vona innilega að okkur í fjárlaganefndinni takist að snúa þessu við.