155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[12:46]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Herra forseti. Svo það sé alveg á hreinu þá er ég að tala um landsframleiðslu á mann í dollurum sem er samanburður á heimsvísu sem er gerður. Þar höfum við stigið upp mjög hratt á undanförnum árum og áratugum. Þetta er það sem við erum í dollurum, þetta er það sem er viðurkennt á heimsvísu og við erum komin hátt í öllum þessum samanburði. Það kom fram í vor á einhverjum listanum að við vorum á topp fimm, bara svo því sé algerlega haldið til haga. Þetta snýst ekki um verðbólgu eða annað, þetta snýst bara um dollarasamanburðinn.

Eins og ég kom hérna inn á áðan hefur framleiðni á vinnustund á Íslandi verið umfram það sem við höfum séð á öðrum Norðurlöndum á síðustu árum, 1,3% yfir átta ára tímabil. Þetta er lykilatriði sem við höfum tekið umræðu um margoft áður, hv. þingmaður. Þetta er náttúrlega hagstærðin sem við erum öll að eltast við til að efla kaupmáttinn. Það er framleiðni á vinnustund sem við öll horfum til. Það hefur tekist, miðað við hinn vestræna heim, bara ágætlega á síðustu árum og við ætlum auðvitað að gera betur.

Varðandi ferðaþjónustuna sem hv. þingmaður hefur verið að tala svolítið um og auðvitað tengist mikil fólksfjölgun því, hún er hluti af þessu ásamt náttúrlega öðrum málum. Árið 2018 var þetta of mikið þegar erlendar gjaldeyristekjur voru yfir 40% af ferðaþjónustunni en á síðasta ári voru þær 32%. Mín persónulega skoðun hefur verið þannig að það væri kannski æskilegt — og það er nákvæmlega fréttin í fjármálaáætlun hjá okkur og í fjárlögunum núna, að það eru að verða til nýjar stoðir undir efnahagslíf þjóðarinnar og það er kannski allt of lítil umræða um það. Það er nákvæmlega það sem kemur í gegnum þetta átak sem var farið af stað með fyrir örfáum árum í rannsóknum og þróun. Það var farið í mikið átak í þeim lið, tengt Covid-aðgerðunum, og það er svo sannarlega að skila sér með gríðarlega öflugum hætti. Til lengri tíma gæti það kannski verið þannig að enginn einn atvinnuvegur færi yfir 25% af gjaldeyristekjunum, við næðum það mörgum stoðum að það yrði þannig. Það er stöðugleikinn sem við erum að fást við.(Gripið fram í.)