155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:02]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra andsvarið. Hluti gagnrýni minnar, hvað varðar þessa miklu áherslu á frumjöfnuðinn, er tilkominn vegna þess hversu hátt hlutfall af útgjöldum ríkissjóðs er að fara í vaxtakostnað. Þó að heildarskuldsetning ríkissjóðs sé hlutfallslega ekki uppi í rjáfri miðað við þau lönd sem við berum okkur helst saman við, og síður en svo í sjálfu sér, þá er hlutfall vaxtagreiðslna af útgjöldum ríkissjóðs með því hæsta sem þekkist í samanburðarlöndunum. Þess vegna gagnrýni ég þessa nálgun sem er svona alltumlykjandi í umræðunni, þykir mér. Sama á auðvitað við um umræðuna um verðbólgu án húsnæðisliðar. Ég sé til að mynda ekkert í þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar sem er að takast á við það sem snýr að framboðshlið lóða, sem er nú grunnurinn að því að komast af stað hvað það varðar að bæta stöðuna á húsnæðismarkaði. Við sjáum bara samtöl bæjarstjóra hér eða borgarstjóra í nágrannasveitarfélögum höfuðborgarinnar þar sem menn eru algjörlega ósammála því með hvaða hætti eigi að nálgast skipulagsmörk höfuðborgarsvæðisins. Þótt ég sé ekki í stöðu til að leggja fyrirspurn fyrir hæstv. ráðherra hér væri áhugavert umræðunnar vegna að heyra afstöðu ráðherrans til þessa mikilvæga atriðis sem snýr að útvíkkun skipulagsmarka höfuðborgarsvæðisins, hvort ráðherrann telji það skynsamlegt eða hvort óbreytt staða sé það sem ætti að horfa til.