fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég held að það sé nefnilega ágætt að við gerum okkur grein fyrir því að staðan á Íslandi er býsna góð eins og hún er. Ég held að hv. þingmaður sé sammála mér um það; hátt atvinnustig, mikilvæg verðmætasköpun, breiðari grunnur, fleiri stoðir undir efnahagslífinu og allt það góða sem við erum að sjá. Og þó að við séum kannski ekki eins sammála um það þá held ég að okkur hafi tekist ágætlega að fjármagna velferðarkerfið, menntakerfið og heilbrigðiskerfið í gegnum síðustu ár og að þau standi býsna vel. Þótt það sé auðvitað alltaf viðvarandi áskorun að gera enn betur fyrir ákveðna hópa eins og gengur þá er áskorunin varðandi vaxtagjöld ríkissjóðs. Þar finnst mér gott að geta bara horft á það og sagt: Þau eru há, við þurfum að vinna í því. Það eru nokkrar leiðir til þess. Ein er til að mynda sú að fá betra mat utan frá og þar af leiðandi betri kjör, einfaldlega vegna þess að staða okkar er miklu sterkari í alþjóðlegum samanburði en landa sem eru í þeirri stöðu og ekki í samræmi við það mat sem þau lönd fá. Ég held að það sé verkefni og það er það sem ég hef verið að setja í gang. Hitt eru síðan húsnæðismálin. Það er augljóst, þegar við horfum aftur í tímann, að það hefur verið áskorun lengi. Hvað er búið að gera? Það er auðvitað búið að taka pólitíska forystu. Það er komin hér fram húsnæðisstefna sem hefur ekki verið til. Fjölmörgum lögum var breytt til þess að hjálpa til við að styðja við uppbygginguna á húsnæðismarkaði. Hagstofan er búin að breyta grunninum að því hvernig húsnæðisliðurinn er reiknaður. Hann væri talsvert hærri ef hann væri enn eftir gömlu útreikningsleiðinni.
Síðan var það umræða hv. þingmanns um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins. Ég held reyndar að það sé ekki eins mikill ágreiningur þar uppi og hv. þingmaður vildi láta í veðri vaka. Ég held að það sé nokkuð augljóst að öll sveitarfélögin verði að geta byggt og enn þá geta þau haldið áfram með þá stefnu sem þau hafa verið með en það þarf að tryggja nægjanlegt framboð af lóðum. (Forseti hringir.) Það er einn mikilvægasti þátturinn í því að auka framboð og við höfum verið að leggja á það áherslu, m.a. með rammasamkomulagi við sveitarfélögin (Forseti hringir.) sem of fá þeirra hafa enn tekið þátt í, því miður.