155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:06]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Herra forseti. Maður er svo óvanur þessari röð á andsvörum að ég var u.þ.b. að rjúka út úr salnum, en ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Hvað húsnæðismálin varðar þá liggur húsnæðisstefnan fyrir frá því í fyrra, samþykkt hér á Alþingi, og það eru ýmis mál sem hafa verið tekin til endurskoðunar. En svo þegar við horfum á raunheima, sem er þetta sambland af þróun húsnæðisverðs, íbúðum í byggingu, aðgengi að fjármagni, svigrúmi til kaupa, trakteringar gagnvart séreignarstefnunni, ætla ég að leyfa mér að segja, þegar við horfum á þessa heildarmynd raunheima, þá er staðan því miður alls ekki góð. Þar held ég að ekki nokkur aðili sem hefur skoðað þessi mál á dýptina — við heyrum nú bara harmakveinin sem berast til að mynda frá Samtökum iðnaðarins í þessum efnum, en þau eru fulltrúar þeirra verktaka sem eru að reyna að komast áfram með sína starfsmenn og standa að byggingu. Jafnvel þótt það sé búið að gera ótalmargar lagabreytingar og leggja húsnæðisstefnu til næstu ára þá blasir ekki við að staðan hafi skánað neitt þótt tölfræðiupplýsingarnar hafi batnað í gegnum breytingar, til að mynda sem HMS heldur utan um í dag. Það held ég að sé það sem stjórnvöld — ja, það yrði verulegt gagn af því í öllu falli að stjórnvöld einbeittu sér að því að koma þessum bolta af stað, fá hann til að rúlla og stækka þannig að vandamálið sem er fremst í röðinni, sem er skortur á lóðaframboði, verði leyst með öllum ráðum sem allra fyrst.