155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:08]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágæta ræðu. Hann vísaði spurningu til mín áðan úr minni ræðu varðandi útgjaldaregluna. Það hefur orðið mikill misskilningur ef það var skilningur þingmannsins að ég hafi sagt að minni hlutinn væri eitthvað á móti útgjaldareglunni. Það hefur ekki verið og ég hef ekki endilega orðið var við það. Það hafa þá verið einhver mismæli. Ég held að þetta geti alveg verið góð umræða að taka upp og ég hef ekki fyrir fram mótaðar skoðanir frá öðrum flokkum á þeim þætti. Útgjaldareglan getur bara verið hluti og góð þróun í lögum um opinber fjármál sem voru samþykkt í þinginu í desember 2015 og hefur verið notast við síðan og þau hafa verið að þróast. Auðvitað höfum við séð ákveðna gagnrýni sem höfum verið lengi í fjárlaganefnd, ýmislegt þar, en ég held að í grunninn hljóti allir að vera sammála um að aginn í ríkisfjármálum hefur stórbatnað við þetta fyrirkomulag sem við erum að vinna með núna. Við sjáum líka, ef við skoðum þetta tíu ár aftur í tímann, að það lítur bara ágætlega út. Það sem hins vegar brenglar þá mynd eru þau ótrúlegu áföll sem við höfum ítrekað lent í á síðustu fimm árum, þar sem heimsfaraldur hefur haft verstu áhrifin. Þetta er því bara samtal sem ég held að þurfi að fara fram í þinginu og í fjárlaganefnd og hjá þeim sem koma að þessu, hvernig er staðið að þessu, svo þessu einstaka atriði sé svarað. Ég kom svo sem í fyrri ræðu minni inn á hagvöxtinn og annað og þá sérkennilegu stöðu sem hefur verið hér, hvað hagvöxturinn hefur verið ótrúlega mikill árin 2021, 2022 og 2023 og skapað mikla erfiðleika í hagstjórninni hér. Þá sérstaklega vegna þess hvernig hagspárnar hafa verið, sérstaklega þjóðhagsspáin í nóvember 2021, fyrir árið 2022 þar sem gert var ráð fyrir 5,5% hagvexti sem endaði í 8,9%. Auðvitað býr það til mikil vandamál (Forseti hringir.) í hagstjórninni þegar svona mikið ber á milli.

Í öðru andsvari langar mig endilega að ræða aðeins skipulagsmörk höfuðborgarsvæðisins og þakka fyrir að minnst er á það.