fjárlög 2025.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er bara ágætt ef misskilningur var á ferðinni varðandi það hvað orsakar að útgjaldareglan er ekki komin til meðferðar hér í þinginu þannig að hún hafi átt nokkurn möguleika til að vera innleidd á nokkrum tímapunkti, en ég held að það væri skynsamlegt margra hluta vegna til að auka agann á meðferð okkar þingmanna á skattfé almennings og þess sem við tökum af fyrirtækjum landsins. Ef við horfum á þróun talna og útgjaldavöxtinn þá erum við nú mjög nærri því að í tíð þessarar ríkisstjórnar séu útgjöld búin að vaxa nafnvirði þannig að þau hafi tvöfaldast. Að raunvirði held ég að sú tala liggi einhvers staðar í kringum 40%. Það er ótrúlega mikill útgjaldavöxtur. Við sjáum bara það sem gerðist í kjölfar Covid-innspýtingar stjórnvalda í hinar ýmsu áttir, það var eins og þau útgjöld mynduðu nýtt gólf sem síðan er byggt ofan á í enn nýjum útgjöldum. Þetta hefur auðvitað verið gagnrýnt víða; fjármálaráð, Seðlabankinn, ýmsir greiningaraðilar og við í Miðflokknum höfum tönnlast á þessu um alllangt skeið. Það er þetta agaleysi og síðan bætist við að almenningur upplifir ekki að menn séu að fá sérstaklega mikið fyrir þessi gríðarlegu auknu ríkisútgjöld, sem verða auðvitað ekki greidd nema með skattpeningum borgaranna. Þegar menn auka enn á slík útgjöld, eins og sér fyrir í hinum ýmsu verkefnum sem á að koma af stað núna, þá verður reikningurinn bara sendur til framtíðarinnar, (Forseti hringir.) þegar verið er að eyða pening sem er ekki til. Í þessu ljósi held ég að útgjaldaregluna ætti að innleiða sem allra fyrst.