155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:13]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég tek undir að maður hefur nú heyrt af hinni svokölluðu Covid-froðu í fjárlögunum. Þess vegna er aðeins verið að reyna að greina og ná utan um þetta og ég held að það sé mjög mikilvægt að ná utan um það. Eins og kom fram í fyrri ræðum gerðum við frekar meira en minna í Covid. Við tókum á því með ótrúlega öflugum hætti. Á þeim tímapunkti þegar við vorum að ræða þetta í fjárlaganefnd þess tíma var gagnrýni hérna í þingsal frá ýmsum um að það ætti að gera meira. Þetta orsakaði að við komum til baka á gríðarlega öflugan hátt eftir 7% fall í landsframleiðslu árið 2020, Covid-árið stóra, og að þremur árum á eftir væri 20% hagvöxtur sem er mjög erfitt fyrir hvaða samfélag sem er að takast á við. Gríðarleg mannfjölgun í landinu og allt þetta þekkjum við, hvaða áhrif þetta hefur á ýmsar hagstærðir. Rannsókn og þróun hins vegar, það var klárlega farið í mikið átak varðandi rannsóknir og þróun og líka í kvikmyndagerðinni og stuðningi við hana. En það er kannski líka hluti og væri mjög fróðlegt að taka þetta saman, nákvæmlega hvað hafi verið eftir Covid-árið og það sem var farið í í tengslum við Covid-aðgerðir á sínum tíma. En í grunninn þá kom fram í skýrslu að ég held í sumar, ég kom aðeins inn á hana í ræðunni áðan, að í rekstri ríkisins í heildina hafi frá árinu 2017 93% af hækkun í ríkisútgjöldunum verið vísitalan, verðbólgan og laun, 93%. Þetta er kannski umræðan. Kaupmáttur í landinu hefur aukist gríðarlega og síðan hækka laun starfsmanna hins opinbera og þá er umræðan kannski: Ókei, ef við ætlum að fara í sparnað þar þurfum við náttúrlega að fara að greina þetta. Við getum síðan tekið langa umræðu, sem við eigum sameiginlega með eftirlitsaðilum og öðrum, hvað það nákvæmlega er sem við erum að fást við þar. (Forseti hringir.) En það eru 93% frá 2017 að nafnvirði af öllum vextinum í fjárveitingum ríkisins sem koma í gegnum þessa þætti. Þannig að þetta þarf bara að greina með ítarlegri hætti.