155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:16]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna um skipulagsmörk höfuðborgarsvæðisins sem hann boðaði í fyrra andsvari sínu. (NTF: … margar spurningar.) Ég skal bara taka til hendinni við að svara þeirri fyrirspurn (Forseti hringir.) sem reyndar kom fram í þögn. En þessi tala — ég hef ekki séð þessa tilteknu skýrslu, hluti af þessu er auðvitað þetta síaukna umfang hins opinbera. Við sáum núna fréttir, ætli það séu ekki tvær vikur síðan eða þrjár, um að tvö af hverjum þremur störfum sem hafa orðið til á undangengnum árum hafi orðið til hjá hinu opinbera. Þetta er hlutfall … (NTF: Það er búið að rengja … 26%.) Þetta er hlutfall sem er ekki sjálfbært. Hv. þingmaður segir hér að það sé búið að rengja þá útreikninga og gott og vel en jafnvel þótt hlutfallið væri lægra þá þarf það að vera miklu, miklu lægra til að sjálfbært geti verið. Þannig að ég held að við þurfum, eins og ég kom inn á í ræðu minni, að hafa kjark til að endurskoða sum þeirra kerfa sem við setjum sem mestan pening í. Við sjáum bara af fréttum og greiningum á grunnskólakerfinu okkar að þar er ekki að takast vel til hvað það varðar að fá góða nýtingu á þeim fjármunum sem þar eru settir inn. Ég er ekki að beina fingrum að neinum í því samhengi, við þurfum bara að setjast niður og reyna að átta okkur á því hvernig við gerum best fyrir börnin okkar fyrir þann pening sem í þessi kerfi fer. Ég held að þar sé mikið verk að vinna og mikið svigrúm til staðar sem væri hægt að nýta áður en menn fara að velta fyrir sér enn meiri skattahækkunum en þegar hafa verið innleiddar hér á heimili og fyrirtæki landsins.

Ég ætla að geyma svar mitt við spurningu hv. þingmanns um skipulagsmörk höfuðborgarsvæðisins (Forseti hringir.) til síðari umræðu, en hún verður áhugaverð.