fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Mig langar hér í dag að fara yfir fjárlög fyrir árið 2025, helstu atriði og áherslur sem í þeim birtast, en frumvarpið mun að sjálfsögðu, að lokinni þessari umræðu, ganga til hv. fjárlaganefndar þar sem við munum fá gesti og umsagnaraðila og funda um málið næstu mánuði. Ég hlakka mikið til þeirrar vinnu, enda hefur vinnuandinn í fjárlaganefnd verið til fyrirmyndar þó að áherslur nefndarmanna séu að sjálfsögðu misjafnar og skiptar skoðanir um hvernig slíkt frumvarp eigi að líta út, hvar eigi að leggja áherslurnar, hvort bæta eigi í eða skera niður. Með fjárlögum er verið að útdeila takmörkuðum gæðum, þ.e. því fjármagni sem ríkið hefur til ráðstöfunar á hverju ári eða hversu miklu fjármagni ríkið hefur úr að spila á ári hverju. Fjárlög hvers árs eru byggð á fjármálaáætlun sem samþykkt var síðasta vor. Samkvæmt henni er afkoma ársins 2025 í öllum meginatriðum í samræmi við þau stefnumið sem sett voru fram í fjármálaáætlun sem samþykkt var í júní síðastliðnum þegar tekið er tillit til áhrifa breyttra þjóðhagsforsendna. Frá vinnslu fjármálaáætlunar hafa efnahagshorfur breyst á þann veg að nú er gert ráð fyrir meiri verðbólgu á yfirstandandi ári og því næsta, auk hærra vaxtastigs.
Heildarjöfnuður er áætlaður neikvæður um 41 milljarð og er það um 15 milljörðum kr. lakari afkoma en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun. Breytingin er að mestu vegna uppfærðrar áætlunar og vaxtagjalda sem hvort tveggja hækkaði um 12 milljarða vegna hærri verðbóta og verðtryggðra lána og hærri vaxta á óverðtryggðum lánum. Áætlað er að frumjöfnuður, sem hefur aðeins verið í umræðunni í morgun, verði jákvæður um 36 milljarða, sem er lægri tala, svo að munar 3 milljörðum, en gert var ráð fyrir í fjármálaáætlun. Þótt heildarumfang frumtekna breytist hlutfallslega lítið frá fjármálaáætlun eru þó nokkrar innbyrðisbreytingar á samsetningu tekna, t.d. hækkuð áætlun um fjármagnstekjuskatt á tekjuskatt lögaðila, samtals 12 milljarðar kr., en á móti lækkar áætlun um virðisaukaskatt og arðgreiðslur um rúmlega 9 milljarða. Áætlanir gera ráð fyrir að snarpur viðsnúningur hagkerfisins í kjölfar heimsfaraldursins, með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á tekjur ríkissjóðs, sé að baki. Gert er ráð fyrir að hagvöxtur verði 0,9% á þessu ári og 2,6% á því næsta, sem er talsverð breyting frá árunum 2021 og 2023 þegar hagvöxtur var að jafnaði yfir 5%. Og fyrir þá sem voru að hlusta á umræðuna áðan fór hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson mjög vel yfir þessar hagvaxtartölur og þær breytingar sem áttu sér stað frá þeim tölum sem lagt var upp með þangað til að árin voru gerð upp í ríkisreikningi, þar sem þessi mikli munur á áætlunum og síðan rauntölum hvað varðar hagvöxt kom í ljós. Mikill hagvöxtur síðustu ára, umfram þær áætlanir, hefur gert að verkum að afkoma ríkissjóðs hefur um þó nokkurt skeið reynst betri en áætlanir fjárlaga gerðu ráð fyrir eða um 100 milljarða á síðustu þremur árum. Heildarútgjöld eru áætluð um 1.552 milljarðar á næsta ári og það er um 61 milljarðs kr. hækkun frá fjárlögum ársins 2024. Þar af eru 54 milljarðar, af þessum 61 milljarði, vegna áætlaðra launa-, gengis- og verðlagsbreytinga. Að þeim frátöldum hækka heildarútgjöld ríkissjóðs um 6,5 milljarða, sem nemur 0,4%. Samtals nemur aukning rammasettra útgjalda um 27 milljörðum eða um 2,2% á föstu verðlagi, en rammasett útgjöld aukast meira en heildarútgjöld málefnasviða þar sem vaxtagjöld og aðrir liðir utan ramma, m.a. afskriftir skattkrafna, lækka um rúmlega 20 milljónir.
Tíminn er knappur hér, virðulegur forseti. Mig langar að fara yfir svo margt en mig langar, í seinni hluta ræðu minnar, að fara aðeins yfir hvað er í frumvarpinu. Hvað er í þessu fjárlagafrumvarpi? Hvað erum við að fara að gera? Á hvað erum við að leggja áherslu? Hvar eru línurnar? Í krónum talið hafa framlög til heilbrigðismála aukist mest eða sem svarar um 41 milljarði kr. frá árinu 2022. Í heilbrigðisþjónustu hefur verið lögð áhersla á aukin rekstrarframlög til sjúkrahúsa, byggingu nýs Landspítala og uppbyggingu nýrra hjúkrunarrýma. Þá hafa framlög til sjúkratrygginga verið aukin og lögð áhersla á bætta geðheilbrigðisþjónustu ásamt lægri greiðsluþátttöku sjúklinga. Í félags-, húsnæðis- og tryggingamálum hafa framlög aukist um 23,6 milljarða kr., svo sem til að bæta stuðning við barnafjölskyldur með auknum stuðningi í gegnum barnabótakerfið og fæðingarorlof. Framlög til húsnæðismála hafa hækkað með auknum stofnframlögum til uppbyggingar almenna íbúðakerfisins og með hækkun húsnæðisbóta. Þar vega aðgerðir stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði þungt. Framlög til samgöngu- og fjarskiptamála hafa aukist um 10,2 milljarða sem skýrist aðallega af 4 milljarða kr. aukningu á fjármagni árið 2025 til samgöngusáttmálans ásamt aukningu framlags til reksturs almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Þá verður framlag til framkvæmda í vegakerfinu jafnframt aukið. Framlög hafa verið aukin um ríflega 8,9 milljarða kr. til mennta- og menningarmála á tímabilinu, einkum til að mæta fjölgun nemenda í framhalds- og háskólum og vegna byggingar þjóðarhallar. Framlög til nýsköpunar-, rannsókna- og þekkingargreina hafa aukist um 8,5 milljarða með endurgreiðslum til nýsköpunarfyrirtækja vegna rannsókna og þróunar og vegna kvikmyndagerðar. Heildarfjárheimild til fjárfestinga og fjármagnstilfærslna í fjárlögum ársins 2025 er um 131 milljarður kr. eða sem nemur um 2,7% af vergri landsframleiðslu. Á næsta ári verður aukinn kraftur settur í byggingu legudeildar við Sjúkrahúsið á Akureyri sem hafði verið frestað í ár. Þá verður fjármagni veitt í byggingu þjóðarhallar í innanhússíþróttum og nýs fangelsis í stað Litla-Hrauns. Í byrjun þessa árs var stofnað hlutafélag um uppbyggingu þjóðarhallar þar sem eignarhlutur ríkisins er 55% og eignarhlutur Reykjavíkurborgar 45%. Gert er ráð fyrir upphafsfjármögnun á byggingu þjóðarhallar með 1,5 milljarða kr. framlagi til verkefnisins á árinu 2025 en alls er gert ráð fyrir að byggingin kosti um 15 milljarða kr. á næstu árum. Áætlunin gerir ráð fyrir að nýtt fangelsi í stað Litla- Hrauns verði um 12.000 m² að stærð og heildarbyggingarkostnaður nemi 14,4 milljörðum miðað við verðlag í upphafi þessa árs. Gert er ráð fyrir að fangelsið verði tekið í notkun á árinu 2028. Fjárfestingarframlög í samgönguframkvæmdum nema 38,3 milljörðum kr. og aukast um 5,7 milljarða á milli ára. Þar vega þyngst aukin framlög til betri samgangna, um 4,2 milljarðar, í samræmi við uppfærðan samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins. Uppfærð framkvæmdaáætlun gerir ráð fyrir að heildarkostnaður verkefnisins verði um 311 milljarðar kr. fram til ársins 2040 og þá er aukið í fjárheimildir til nýframkvæmda og viðhalds á vegakerfinu um 3 milljarða kr. en á móti falla niður 1,5 milljarðar í tímabundnar fjárheimildir til sömu mála. Stærsta einstaka byggingarframkvæmdin í fjárlagafrumvarpinu er bygging nýs Landspítala og nemur fjárveiting til verkefnisins um 18,4 milljörðum en samkvæmt uppfærðri framkvæmda- og tímaáætlun verða framkvæmdir hins vegar mun umfangsmeiri en fjárveiting frumvarpsins gefur til kynna eða sem nemur 25 milljörðum.
Þar sem ég er að brenna á tíma, virðulegur forseti, langar mig að segja hér að lokum að sú umræða sem hér hefur staðið um fjárlagafrumvarpið, og verður áfram hér í dag, hefur verið góð og verður áfram. Ég hlakka til að hlusta á áframhaldið í dag, en eftir umræðurnar fer frumvarpið til fjárlaganefndar, eins og áður sagði, sem mun taka það til umræðu og skoðunar. Það er mín skoðun að frumvarpið sem hér hefur verið lagt fram tali inn í það stóra verkefni sem við sem samfélag stöndum frammi fyrir, sem er að ná niður verðbólgu og þar með vöxtum. (Forseti hringir.) Ég hef trú á því að þetta frumvarp sé mikilvægur liður í þeirri vegferð.