155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[13:29]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Þetta reddast allt. Þrátt fyrir að þetta fjárlagafrumvarp boði aukna þenslu, meiri útgjöld, byggingu þjóðarhallar, byggingu nýs fangelsis o.fl. þá er virkilega reynt að bera það á borð að það sé liður í baráttunni gegn verðbólgunni. Það hefur líka komið fram, fyrir utan það að þetta reddast allt, að sú kerfisbreyting sem aðallega hefur verið boðuð með fjárlagafrumvarpinu er hvernig koma eigi álögum á bensín- og dísilbíla, hvernig leggja eigi kílómetragjald á bensín- og dísilbíla en afnema bensíngjaldið af þeim á móti. Kannski hefði verið eðlilegra að fá að vita nokkurn veginn hversu miklar álögur verða á bensín- og dísilbíla, hversu hátt þetta gjald verður, kílómetragjald. Verður það kannski það öflugt að jafnvel þeir efnaminni, sem eiga enga möguleika á því að komast inn í kerfið í sambandi við rafmagnsbílana, geti ekki einu sinni keyrt gömlu drusluna sína áfram vegna þess að hún verði svo skattpínd að þeir verði bara að láta úrelda hana? Enda skilst mér að það eigi bara að úrelda alla bíla eftir að þeir verða 25 ára gamlir og keyra á bensíni eða dísil, að ekki eigi að vera heimild til að hafa þá á götunum lengur. Einu sinni mér áður brá. En þetta er aðalkerfisbreytingin, þarna ætla þeir aldeilis að ná í peningana og reyna að ná í meiri peninga af þeim sem eru að keyra um göturnar. Það er ekki nóg að vera búnir að eyðileggja gatnakerfið í borginni. Á sama tíma og verið er að tala um að allt sé vænt sem vel sé grænt og setja milljarða í frekari loftslagsógnir, eins og við munum bjarga heiminum þegar kemur að mengun og öllu því sem yfir okkur er að ganga — nei, þá erum við föst í umferðinni alla daga úr og í vinnu í þessari borg, þar á meðal niðri við Klambratún þar sem eru gönguljós, og þar sem eru 100 til 200 bílar stopp mislengi og pústa út frá sér þeirri mengun sem hægt væri að losna við ef ekki væri búið að rústa gatnakerfinu hér í Reykjavík, klippa af akreinar og annað slíkt til þess að þrengja að umferðinni og gera okkur öll svo fúl að við tökum því fagnandi að fá að borga á fjórða hundrað milljarða kr., miðað við núgildandi verðlag, fyrir nýja borgarlínu. Við búum jú bara í ríflega 100.000 manna borg. Þvílíkt mikilmennskubrjálæði og veruleikafirring þegar okkur hefði verið í lófa lagið að hafa umferðina í borginni mjög þægilega. Það hefði aldrei þurft að koma til þess að við værum stopp í umferðinni með óþarfamengun. En það er lágmarkskrafa fyrir samfélagið að öllum sé gefinn kostur á því að ferðast og njóta þess ferðamáta sem honum best líkar. Það er óþverraskapur að ætla að skattleggja fátækasta fólkið þannig, sem varla hefur efni á því að setjast út í bifreiðina sína til að koma sér út í búð, sem hefur ekki einu sinni efni á því að versla í þessum okurbúðum hérna — að gera það að verkum að það þurfi að leggja bílunum sínum. Það er lágmarkskrafa að við fáum að vita hve hátt þetta kílómetragjald á að verða.

En það er líka athyglisvert að sjá það sem ekki er talað um í frumvarpinu. Að státa af því að vera að koma hér með breytta almannatryggingalöggjöf, þessa flugeldasýningu Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs um það hversu frábær þau eru við öryrkja þessa lands — þar fannst mér skotið allverulega yfir markið og meira að segja hefur hæstv. félagsmálaráðherra gert lítið úr því að Flokkur fólksins skyldi standa vörð um öryrkja þegar við greiddum ekki atkvæði með þessu frumvarpi, frumvarpi sem gerði ráð fyrir að strax í janúar ætti að hækka framlög til öryrkja um 10,1 milljarð kr. Að sjálfsögðu er það frábært. Að sjálfsögðu hefði Flokkur fólksins allan daginn, allan tímann, greitt atkvæði með því. En það var nefnilega svolítið fleira sem hékk á spýtunni, hið svokallaða starfsgetumat. Það er ekkert að því að meta einstakling til starfsgetu, því flestallir ef ekki allir kjósa að fá að taka þátt í samfélaginu og vinna frekar en að verða dæmdir úr leik vegna veikinda og vangetu til að sinna störfum á vinnumarkaði. En hér er látið eins og fólk sé á örorku af því að það nenni ekki að vinna. Sú mantra hefur riðið röftum í þessu samfélagi alveg frá því að ég fór á örorkubætur 38 gömul. Það er með hreinum ólíkindum. Síðan kemur kjarapakkinn sem er verið að grobba sig af. Við erum að hækka barnabætur, við erum að hækka húsnæðisbætur, við erum að hækka þessar bætur, við erum að hækka þetta allt saman. Sjáið þið ekki hvað við erum frábær. Á sama tíma ætlum við að láta öryrkjana borga það vegna þess að við ætlum að fresta greiðslum, þessum 10,1 milljarði, til 1. september á næsta ári. Þau geta nefnilega enn beðið eftir réttlæti. Það er málið. Hverjir eru það sem alltaf eru settir hjá garði og fá að bíða eftir réttlætinu alveg frá því í efnahagshruninu 2008 þegar ráðist með heiftarlegum niðurskurði á framfærslu þeirra sem þurftu að reiða sig á greiðslur Tryggingastofnunar? Hverjir skyldu það nú vera? Bíðið aðeins, leyfið mér að hugsa: Jú, öryrkjar. Af öllum eru það öryrkjar. Og það nýjasta sem sýnir veruleikafirringuna, svo að ekki verður á móti mælt, er að starfsmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi Íslendinga tekur ekki einu sinni eftir því þegar hann kemur með svo ótrúlegar tölur á prenti í grein sem hann sendir frá sér. Hugsa sér, hann gefur í skyn að einstæð móðir með tvö börn sé með vel yfir milljón á mánuði í tekjur, hjá honum fær hún útborgað yfir 800.000 kr. Bara ein sér og sjálf, með ekkert annað en greiðslur frá Tryggingastofnun, átti þessi einstaklingur að vera með vel á 700.000 kr. útborgaðar eftir skatt. Og hér stend ég og hef mælt fyrir frumvörpum ár eftir ár um að koma lágmarksframfærslu, skatta- og skerðingarlaust, upp í 400.000 kr. sem er á pari við laun upp á 619.000 kr. En við erum enn að berjast fyrir því að fá laun skatta- og skerðingarlaust fyrir okkar fátækasta fólk upp í 400.000 kr. Þá kemur þessi starfsmaður Sjálfstæðisflokksins á Alþingi Íslendinga og segir bara blákalt: Jú, þessi einstaklingur sem er að fá greiðslur frá almannatryggingum er með tekjur upp á næstum 700.000 kr. á mánuði eftir skatt. Er það nema von að hlutirnir séu eins og þeir eru ef þetta er hugarfar þeirra sem eiga að vita betur og eiga að taka utan um þá sem höllustum fæti standa í samfélaginu?

En hvað um það. Það sem við erum að horfa upp á hér í dag er ekki það sem hæstv. forsætisráðherra hefur gjarnan klifað á alveg frá því að ég settist á þing fyrir sjö árum, að við höfum það best og séum frábærust í heimi, hér sé mesti kaupmáttur sem þekkist og ég veit ekki hvað og hvað, að meðaltali hitt og að meðaltali þetta. Alveg eins og við förum út í búð og segjum: Heyrðu, ég er hér með 210.000 kr. útborgaðar. En ég get komið hér og keypt mér það sem mig langar í á diskinn minn vegna þess að að meðaltali hef ég það svo rosalega gott, í það minnsta segja ráðherrar hæstv. ríkisstjórnar mér það. Það hlýtur að vera satt, er það ekki? Þetta er svo mikið bull að maður getur ekki einu sinni tjáð sig um það. En hins vegar er það líka þessi skortstefna sem hefur verið rekin hér á húsnæðismarkaði sem er nákvæmlega uppskriftin að því sem við erum komin með í fangið í dag. Við höfum um árabil rekið stefnu sem hefur komið í veg fyrir að byggt sé til að anna eftirspurn. Uppskeran er þessi: Húsnæðisverð hefur margfaldast, leiguverð hefur margfaldast, græðgisvædd leigufélög eiga orðið yfir 70% af öllum fasteignamarkaðinum, þ.e. á leigumarkaði. Bankarnir halda áfram að hækka vexti eins og við fengum að vita í gær. Endalaus svívirðileg og ólýsanleg græðgi, taumlaus græðgi, ríður hér röftum og það algerlega átölulaust af hæstv. ríkisstjórn sem státar sig af því og segir: Sjáið þið tindinn, þarna klifruðum við. Við erum svo frábær: Finnið þið ekki hvað við höfum það gott? Finnið þið það ekki, fátæka fólk, sem eruð að fá 310.000 kr. útborgaðar og borgið 300.000 kr. í leigu, og eigið ekkert eftir til að sinna ykkur og börnunum ykkar, hafið ekkert öryggi, fæði, klæði, húsnæði? Gleymdu hugmyndinni. En þið hafið það að meðaltali alveg svakalega gott. Það segja OECD–skýrslurnar, ekki satt?