155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:11]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Fjárlagafrumvarpið sem við hér ræðum er að mörgu leyti jákvætt frumvarp og skiptir okkur öll máli að sjálfsögðu. Ég vil kannski fyrst koma inn á, ef maður á að segja yfirlitið og það sem blasir við að er jákvætt. Í fyrsta lagi er afgangur af svokölluðum frumjöfnuði og frumjöfnuður er staða ríkissjóðs að frátöldum vaxtagreiðslum ríkissjóðs og greiðslum af lánum sem ríkissjóður hefur tekið. Þessi staða er jákvæð og það er að sjálfsögðu mjög mikilvægt. Það eru jafnframt aðhaldsmarkmið í frumvarpinu en það er líka bætt í samkvæmt stefnumörkun í mikilvægum málaflokkum, eins og t.d. samgöngum og samgönguinnviðum. Það má nefna að frítekjumark ellilífeyris hækkar og við erum að setja peninga í stofnframlag vegna íbúða til þess að flýta málsmeðferðartíma í hælisleitenda- og alþjóðaverndarkerfinu, svo eitthvað sé nefnt. Það er mikilvægt að við getum haldið áfram velferðinni og við erum að viðhalda henni þrátt fyrir þessi aðhaldsmarkmið. Persónuafslátturinn kemur til með að hækka um 6,3% og þrepin í skattkerfinu munu hækka að sama skapi. Það verða krónutöluhækkanir af hálfu ríkissjóðs um áramótin eins og verið hefur en þær verða einungis 2,5%, ættu í raun og veru að vera 6% vegna verðlagsbreytinga. Þetta er allt jákvætt.

Það er hins vegar alveg ljóst, frú forseti, að ríkissjóður greiðir of háa vexti og það er mjög mikilvægt og til mikils að vinna að lækka þá. Það er markmið ríkisstjórnarinnar og það er markmið þessa frumvarps og í því sambandi vil ég koma inn á einn þátt sem er mjög mikilvægur svo við getum lækkað vexti og vaxtagreiðslur ríkissjóðs. Það er salan á Íslandsbanka sem stefnt er að að ljúka á næsta ári. Nú eru sumir sem segja: Hvers vegna er verið að selja banka sem er að gefa okkur arðgreiðslur á hverju ári? Það er nú einu sinni þannig að það er mjög dýrt að taka lán og við þekkjum það og bæði fyrir heimilin og ríkissjóð er mikilvægt að reyna að skulda sem minnst. Það mun hafa mjög jákvæð áhrif á vaxtagreiðslur ríkissjóðs ef bankinn verður seldur og það sem fæst fyrir hann verður nýtt til þess að greiða upp skuldir. Ríkið á um 42,5% hlut í bankanum og markaðsvirðið er 90–100 milljarðar. Verði þessi upphæð sett að fullu í að lækka skuldir mun skuldahlutfall ríkissjóðs af vergri landsframleiðslu lækka um 1% og kæmist þá undir 30% sem er mjög jákvætt og mjög gott í alþjóðlegum samanburði. Það er því til mikils að vinna og það væri óábyrgt að fara ekki í þá vegferð að selja þennan banka vegna þess að við þurfum að huga að því að kostnaður ríkissjóðs vegna vaxtagreiðslna er allt of hár.

Í því sambandi er líka rétt að horfa til þess og ég hvet hæstv. fjármálaráðherra til að skoða hvort það sé rétt að við myndum reyna í auknum mæli að fjármagna lántökur eða taka lán erlendis vegna þess að það er dýrara að taka lán á Íslandi. Það væri æskilegra að mínu mati að skoða það að draga úr lánaútboði innan lands vegna þess að þau hafa náttúrlega áhrif á eftirspurn eftir fjármagni í landinu og þar með verðbólguþrýsting. Alla vega þá að draga úr því og skoða það að reyna að fjármagna ríkissjóð með lántökum erlendis í meira mæli en verið hefur. Ég held að það sé vel þess virði að skoða það. Ef bankinn yrði ekki seldur þá þarf eins og ég segi ríkissjóður einfaldlega að taka meira lán og það er ekki skynsamlegt í því efnahagsumhverfi sem við erum í.

Ég vildi líka aðeins nefna það hér að þegar kemur að hækkun almenns frítekjumarks ellilífeyris þá fagna ég því sérstaklega að það skuli í þessu frumvarpi verið að bæta kjör ellilífeyrisþega með þessum hætti. Hið almenna frítekjumark ellilífeyris mun hækka samkvæmt fjárlagafrumvarpinu um 46% sem nemur um 138.000 kr. á ári fyrir einstakling og er þá með þeim hætti að það fer úr 25.000 kr. á mánuði og verður eftir hækkunina 36.400. Þetta er löngu tímabær hækkun sem ég fagna sérstaklega. Þessi breyting tekur gildi þann 1. janúar nk. og fylgir ellilífeyrir eftir það reglubundinni hækkun á bótum almannatrygginga líkt og á við um frítekjumörkin í örorkulífeyriskerfinu, en við breyttum því hér í þinginu síðastliðið vor. Auk þess er í frumvarpinu kveðið á um 200 millj. kr. viðbótarframlag vegna átaksins sem heitir Gott að eldast. Þar taka stjórnvöld utan um þjónustu við eldra fólk með nýjum hætti. Þetta er afar jákvætt að mínu mati og skiptir okkur máli. Þá hækka bætur almannatrygginga um 4,3% núna um áramótin vegna launa og verðlags og hækkunin nemur um 4,5 milljörðum kr. vegna örorku og endurhæfingar og 5 milljörðum kr. vegna ellilífeyris. Þetta er allt mjög jákvætt að mínu mati, frú forseti, og ég fagna þessu sérstaklega, það er löngu tímabært að bæta kjör ellilífeyrisþega.

Í lokin vildi ég koma aðeins inn á annað atriði sem mér finnst skipta máli og ég hvet hæstv. fjármálaráðherra til að endurskoða það og jafnframt að nefndin fari yfir það í sinni vinnu. Það lýtur að hinum svokallaða viðbótarlífeyrissparnaði sem hefur verið heimilt að greiða inn á höfuðstól lána fyrir íbúðarkaupendur. Þessu á að breyta samkvæmt frumvarpinu núna um áramótin og það verður þá einungis heimilt að greiða inn á lán hjá fyrstu íbúðarkaupendum. Ég tel þetta ekki skynsamlega ráðstöfun eins og staðan er núna. Þetta er mikilvægt til að draga úr greiðslubyrði fólks og reyna að ná sínum lánum niður. Ég hefði meira að segja viljað sjá að þetta úrræði yrði útvíkkað, þ.e. að það yrði heimilt tímabundið fyrir þá sem eru kannski verst staddir núna í þeirri verðbólgu sem við erum að glíma við, sem eru nú öll teikn á lofti um að sé á niðurleið á næstu mánuðum, að nota þetta sparnaðarform til að greiða einnig vexti og afborganir. Ég hefði viljað sjá að það yrði farið yfir þetta í nefndarvinnunni sem fram undan er og vil hvetja nefndarmenn og formann fjárlaganefndar til að fara yfir það. Ég held að þetta sé eitthvað sem við verðum að fara mun betur yfir, að breyta þessu. Ég held að þetta sé ekki rétta tímasetningin til að breyta þessu með þeim hætti sem lagt er upp með í frumvarpinu. Ég veit til þess að það er áhugi meðal nefndarmanna til að endurskoða þetta og ég trúi því að það verði komist að farsælli niðurstöðu hvað það varðar. Auk þess vil ég, eins og ég segi, hvetja nefndina til þess að útvíkka úrræðið frekar og þá bara tímabundið til að mæta þeirri aðstöðu sem við erum í.

Þetta eru helstu þættirnir sem ég vildi koma inn á í þessari umræðu sem er frekar stutt en það er hægt að koma á síðari stigum að sjálfsögðu inn í þessa umræðu sem ég mun gera. En í heildina tel ég að hér sé á ferðinni gott fjárlagafrumvarp sem felur í sér aðhald en að jafnframt sé verið að styðja áfram við velferðina sem er okkur öllum mjög mikilvæg. Staða ríkissjóðs er að mörgu leyti ágæt og ég trúi því að við sjáum fram á það að verðbólga og stýrivextir muni lækka hratt á næstu mánuðum. En við verðum líka að hafa það í huga að við glímum við annað vandamál sem er húsnæðisskorturinn, sem verður að segjast eins og er að skrifast að stórum hluta á sveitarfélögin, sérstaklega hér á höfuðborgarsvæðinu. Þau hafa ekki haft nægilegt framboð af húsnæði sem aftur á móti gerir það að verkum að húsnæði verður dýrara og hækkar þar með verðbólgu. Við vitum það að verðbólgan er um 6% en ef húsnæðisliðurinn væri ekki inni þá væri hún 3,6%. (Forseti hringir.) Þannig að ég vil líka hvetja sveitarfélögin til að auka framboðið á húsnæðismarkaði. Það er okkur afar mikilvægt í þeirri efnahagsaðstöðu sem við erum í í dag.