155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:21]
Horfa

Vilhjálmur Árnason (S):

Virðulegur forseti. Ég ætla að taka þátt í þessari umræðu um fjárlög ársins 2025. Það er búið er að vera með ólíkindum að fylgjast með umræðunni hér undanfarna daga, sérstaklega hjá stjórnarandstöðunni en ég tek undir með fyrri ræðumanni, hv. þm. Birgi Þórarinssyni, að þetta eru bara nokkuð góð fjárlög miðað við þá stöðu sem við erum í á margan hátt. Ég segi ekki að það sé ekki margt sem ég og við í Sjálfstæðisflokknum myndum vilja gera öðruvísi í þessum fjárlögum en við erum í þeirri stöðu eftir lýðræðislegar kosningar að hér þarf að vera þriggja flokka ríkisstjórn. Við mynduðum þriggja flokka ríkisstjórn að mynda hér stöðugleika í stjórnmálunum, stöðugleika sem skiptir hvað mestu máli til að takast á við verðbólgu og vexti, að það sé ekki pólitískur óstöðugleiki sem ýtir verðbólguvæntingunum upp og myndi enn frekar ýta undir þetta. Því tel ég að þessir þrír samstarfsflokkar í ríkisstjórn hafi komið hér með mjög góða lendingu og hafa sýnt það undanfarin ár að þeir eru með ábyrga og góða efnahagsstjórn sem hefur skilað því, eins og hefur margoft verið nefnt hér í dag, að við erum að horfa fram á það og höfum miklar væntingar til þess að vextirnir séu að lækka og verðbólgan hefur verið að hjaðna. Það hefur ekki gerst af sjálfu sér. Það hefur bara alls ekki gerst af sjálfu sér. Vissulega koma vaxtahækkanir Seðlabankans þar við sögu en líka það að við höfum verið að spila með peningastefnunni með því að sýna aðhaldssöm fjárlög.

Núna höfum við dregið saman, miðað við vöxt hagkerfisins, útgjöld ríkisins fimmta árið í röð. Við höfum skilað betri afkomu og betri afkoma í fjárlögum er ekki bara út af því að hér sé verðbólga og ríkið sé að græða á verðbólgunni eins og stjórnarandstaðan vill halda fram. Það er langt í frá. Það er miklu meira út af því að við erum að glíma eiginlega við svolítið stórt lúxusvandamál hér, þ.e. vöxtinn í hagkerfinu. Vöxturinn í hagkerfinu hefur verið svo mikill, t.d. í nýsköpuninni þar sem við höfum verið að fjárfesta undanfarin ár í skapandi greinum með ýmsum skattalegum hvötum og vísisjóðum og samkeppnissjóðum sem hjálpa nýsköpuninni og skapandi greinum í landinu og skapað þannig fjórðu efnahagsstoðina, aukið útflutningstekjurnar og umsvifin í hagkerfinu. Það er að miklu leyti að gefa okkur auknar tekjur og svo höfum við verið með alls kyns aðgerðir, bæði einföldun á regluverki og skattalegt hagræði og annað slíkt víðar í kerfinu þannig að á mörgum stöðum í atvinnulífinu, eins og t.d. í kvikmyndagerð og víðar, hefur verið mikill uppvöxtur. Þetta er allt að skila sér. Þess vegna getum við komið með ábyrg fjárlög og getum verið að verja velferðarkerfin okkar. Við gátum gert breytingar í vor á örorkukerfinu sem voru gríðarlega mikilvægar. Við höfum verið að gera stanslausar breytingar á almannatryggingakerfi eldri borgara. Við höfum verið að setja aukinn kraft í heilbrigðiskerfið og löggæsluna. Bara í þarsíðustu fjárlögum bættum við 1,5 milljörðum inn í lögregluna til að takast á við skipulagða glæpastarfsemi, í rannsóknir á kynferðisbrotum o.fl., breyta skipulaginu. Allt þetta höfum við getað gert út af ábyrgri efnahagsstjórn á sama tíma og við erum að takast á við vandamálin sem eru í dag.

Við verðum að hafa heildarmyndina. Þetta er ekki alltaf bara það sem er að gerast daginn í dag. Við þurfum aðeins að skoða hvað hefur verið gert og hver forsendan er fyrir því að við getum verið að gera svona vel eins og er að gerast í dag. Hver er forsendan fyrir því að Ísland er að standa sig best á öllum lífskjaramælikvörðum landa sem við viljum bera okkur saman við? Af hverju er viðspyrnan mest hér? Af hverju er hagvöxturinn mestu? Af hverju er þetta svona?

En ég ætla ekki að gera lítið úr því að við erum að takast á við stórt vandamál sem er gríðarleg kjaraskerðing fyrir heimilin og kemur niður á velferðinni, þ.e. há verðbólga og háir vextir. Það er verkefnið sem við þurfum að sameinast um. Þá skiptir máli að hafa haft efnahagsstjórnina sterka þegar við fáum röð áfalla í efnahagskerfinu í gegnum heimsfaraldur, þar áður fall heils flugfélags, WOW air. Við fáum stríð af hálfu Rússa í Úkraínu, við fáum stríð á Gaza, það eru náttúruhamfarir á Reykjanesi en líka náttúruhamfarir á Seyðisfirði og það eru mikil teikn á lofti víða. Þetta kostar peninga, þetta setur strik í ferðaþjónustuna sem er ein af okkar lykilatvinnugreinum o.fl. Samt erum við að lækka skuldahlutfallið sem hjálpar til við að lækka verðbólguna. Samt erum við að koma með fjárlög sem verja velferðina en auka samt aðhaldið miðað við vöxt hagkerfisins. Á sama tíma erum við líka með mestu fólksfjölgunina í Evrópu og því fylgja að sjálfsögðu vaxtarverkir en við kveinkum okkur ekkert yfir því af því að við erum tilbúin að takast á við verkefnið.

Ég kom aðeins inn á það að kannski hefðum við viljað leggja meiri áherslu á sölu ríkiseigna til að fjármagna aðra innviðauppbyggingu af því að innviðaskuldin er orðin víða mikil, grunninnviðirnir sem við þurfum að byggja upp. Það er náttúrlega á húsnæðismarkaði en við erum að gera mjög vel í þessum fjárlögum hvað húsnæði varðar. En sveitarfélögin þurfa að koma með. Þar skipta markaðslögmálin máli. Það vantar lóðaframboð og ég hef gagnrýnt það mikið undanfarið að sveitarfélögin eru farin að sækja sér tekjur í gegnum lóðaskort sem er orðinn alvarlegur vítahringur. Þau fá einskiptistekjur þegar þau selja lóðirnar. Svo kemur fjárfestirinn sem kaupir lóðirnar af þeim, selur þær einu sinni, tvisvar til að fá sína ávöxtun út úr lóðakaupunum áður en verktakinn getur farið að byggja fyrir okkur almenning húsnæðið. Þetta getur ekki gengið svona. Þá hækkar fasteignaverðið og þá fá sveitarfélögin betri tekjur í fasteignagjöld. Þetta er eitt af stóru verkefnunum en við höfum sýnt hérna megin að við höfum verið að reyna að einfalda regluverkið, sem má þó gera enn þá betur í, og svo höfum við verið að setja inn hlutdeildarlán og fjárfesta í húsnæðisbótum og vaxtabótum o.fl. til þess að reyna að aðstoða á þessu sviði.

En samgönguinnviðir eru líka gríðarlega mikilvægir. Þeir eru mikilvægar til að auka velferðina, draga úr kostnaði heilbrigðiskerfisins, það er stórt jafnréttismál að byggja upp samgönguinnviði og eykur það líka alltaf hagvöxtinn. En það þarf að gera það skynsamlega og á ábyrgan hátt og við þurfum að ræða það og líka, ef stórar framkvæmdir komast ekki í vinnu, hvernig við forgangsröðum næstu framkvæmdum með vilja Alþingis en ekki einhvers úti í bæ. Það þarf að tryggja það. Svo eru orkuinnviðirnir, það er mikil fjárfesting í þeim núna, það mun skipta miklu máli til að við náum að nýta auðlindirnar og orkuna, hætta að flytja inn olíu og nota okkar eigin orku. Með öflugri orkuinnviðum, hvort sem það er betra flutningskerfi þar sem við drögum úr tapinu eða nýjungar í orkuframleiðslu eða bara það sem við kunnum vel — allt þetta hjálpar okkur við að takast á við efnahagslegar áskoranir. Ef við þurfum ekki að flytja inn olíu og getum notað okkar orku þá batnar viðskiptajöfnuðurinn.

En hvenær voru vextirnir hvað lægstir? Það var þegar ríkissjóður var rekinn með afgangi. Það var þegar viðskiptajöfnuður við útlönd var mikið í plús og það var líka þegar lífeyrisgreiðslurnar, iðgjaldið var hækkað úr 12% upp í 15%. Þá var almenningur eða launþegahreyfingin að spara meira og með því að allir voru að spara þá gekk þetta vel. Við þurfum að komast þangað aftur.

Það er margt sem ég vildi fara hérna yfir en í lokin vil ég tala aðeins um millistéttina. Það er ungt fólk sem er að kaupa sér húsnæði og eignast börn og er að stofna fjölskyldu, borga námslánin, er nýkomið úr námi eða í námi. Það eru oftast þau sem eru á hvað hæstu laununum. Það eru breiðu bökin sem stjórnarandstaðan talar hér um að eigi að skattleggja þannig að alltaf þegar við tölum um að auka skatta eða auka tekjuöflun ríkisins þá mun það lenda á þessu fólki sem þarf hvað mest á peningunum að halda til þess að byggja upp fjölskyldu og hlúa vel að framtíð Íslands, eignast fleiri börn, geta menntað sig og nýta tækifærin og auka velferðina í þessu landi. Við skulum því fara varlega í það að tala um tekjuöflun og breiðu bökin án þess að hugsa um millistéttina sem er hvað mikilvægust í þessu landi og mun alltaf taka reikninginn. Því vil ég taka undir með þeim sem hafa rætt hér í dag um að séreignarsparnaðarleiðin til að greiða inn á húsnæði er gríðarlega mikilvæg og við þurfum að taka heiðarlegt samtal um að framlengja henni. Hún mun gilda áfram fyrir fyrstu íbúðarkaupendur í tíu ár. En við þurfum að hafa þetta sem almenna aðgerð áfram af því að hún hjálpar millistéttinni við að stofna fjölskyldur hér í landinu.