fjárlög 2025.
Frú forseti. Það er mjög forvitnilegt að heyra hv. þingmann taka undir með hæstv. forsætisráðherra sem segir að skilvirkasta tækið til þess að takast á við verðbólgu þegar svona ber undir séu einmitt stýrivextir Seðlabankans. Það er það sem hér er átt við. Ríkisfjármálin eru ekki eins skilvirkt tæki til þess að kljást við verðbólgu. Það er ágætt að hv. þingmaður sé þá sammála mér um það. Ég skal hins vegar líka að vera sammála hv. þingmanni, og það er ekkert launungarmál, um að auðvitað hafa ríkisfjármál áhrif. Þá skiptir máli að það sé verið að auka aðhald eins og er verið að gera. Afkoma ríkissjóðs er að batna. Bæði Seðlabankinn eða AGS staðfesta að ráðstafanir í ríkisfjármálum séu að vinna með stýrivaxtatæki Seðlabankans. Þetta er staðan. Það sem er eiginlega merkilegast er að hv. þingmaður komi hér og staðfesti það sem hæstv. ríkisstjórn er að segja: Þetta er að virka, verðbólga er að koma niður og vextir munu þar af leiðandi líka lækka.