fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Það sem er auðvitað athyglisvert hér er að hv. þingmaður staðfestir svo rækilega hvað hann er ánægður með einmitt þá leið sem hefur verið farin til að vinna gegn verðbólgunni. (Gripið fram í.) Já, hv. þingmaður fagnar að hér hafi verið farin sú leið að láta fyrst og fremst skuldsett heimili, láta fyrst og fremst yngri kynslóðirnar bera byrðarnar af verðbólgunni. Seðlabankinn hefur margbent á að með því að beita ríkisfjármálunum af meiri þrótti til að vinna gegn þenslu þá þyrfti miklu minni vaxtahækkanir til. Seðlabankinn hefur beinlínis skrifað það upp inn í Peningamálaheftið sitt hversu mikið ríkið þyrfti að bæta sína afkomu til þess að Seðlabankinn gæti lækkað vexti. En ríkisstjórnin hefur ekki hlustað á þetta. Seðlabankinn hefur beinlínis gefið leiðbeiningar um það hvernig ríkisstjórnin gæti hjálpað til við að ná niður vaxtastigi en eins og hv. þingmaður staðfestir hér þá er það eindreginn vilji ríkisstjórnarinnar og þingmeirihlutans hér á Alþingi að það sé Seðlabankinn fyrst og fremst sem sjái um þetta.
Þessi vaxta- og verðbólgustefna ríkisstjórnarinnar, leyfi ég mér að kalla hana vegna þess einmitt að hv. þingmaður úr Sjálfstæðisflokknum fagnar því að þetta sé sú leið sem farin sé gegn verðbólgunni, þessi stefna er ígildi tugmilljarða skattahækkana, sérstaklega á ungt fólk, á öll þau sem skulda. Það er efnahagsstefna ríkisstjórnarinnar að láta Seðlabankann um það. Það er ágætt að fá það staðfest. Við í Samfylkingunni erum ósammála. Við erum sammála Seðlabankanum um að ríkisfjármálin hefðu átt að gera meira. Það hefði átt að beita ríkisfjármálunum af meiri krafti til jöfnunar. Það hefði bæði átt að vera með meira aðhald á útgjalda- og tekjuhlið. Ríkisstjórnin hefur brugðist í hvoru tveggja. Hún hefur brugðist þegar kemur að ráðdeild í ríkisrekstri. Hún hefur brugðist þegar kemur að því að girða fyrir skaðlegar skattaglufur (Forseti hringir.) og hún hefur brugðist þegar kemur að því að veita fólkinu í landinu einhverja von um að við getum einmitt byggt upp innviði og vaxið hérna til framtíðar. (Forseti hringir.) Þetta er óafsakanlegt. Það er óafsakanlegt að fara þessa leið í glímu við verðbólgu (Forseti hringir.) og mig grunar að ríkisstjórninni og ríkisstjórnarflokkunum muni hefnast fyrir þetta.
(Forseti (ÁLÞ): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutíma.)