155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:47]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Frú forseti. Nýlega var kynnt nýtt fjárlagafrumvarp fyrir árið 2025 undir yfirskriftinni „Þetta er allt að koma“. Nú verður að viðurkennast að við sem fylgjumst með þróun efnahagsmála mjög náið höfum nokkrar áhyggjur af því að það sé ekki fyllilega þannig að allt sé að koma heldur hugsanlega að allt sé að fara. Nú hef ég talað fyrir því í þessum sal í umræðum um fjárlög undangenginna ára að aðhald væri nauðsynlegt í rekstri hins opinbera. Á það hefur ekki verið hlustað og nú er komin upp sú staða að skuldabyrði íslenska ríkisins vegna hárra vaxta er mjög veruleg, skerðir verulega getu ríkisins til að sinna sínum verkefnum og til að vinna að markmiðum um lækkun verðbólgu. Þetta er auðvitað mjög miður.

Í umræðunni í dag hafa margir komið upp og talað fyrir aðhaldi en því miður er staðan sú að tími aðhalds er senn á enda. Hagtölur benda til þess að því hagvaxtarskeiði sem við höfum upplifað á undanförnum árum sé að ljúka og þá þyrfti að vera til svigrúm hjá hinu opinbera til að bregðast við, en því miður hefur góðæri undangenginna ára ekki verið notað til að vinna í haginn heldur þvert á móti hafa ríkisskuldir aukist verulega og svigrúmið er takmarkað. Í rauninni er á þessum tímapunkti ekki auðvelt að sjá með hvaða hætti ríkið ætti að styðja við hagkerfið á komandi misserum ef bráðabirgðatölur Hagstofunnar um þróun hagvaxtar reynast réttar.

Það er áhugavert og hefur verið gert í þessum sal fyrr í umræðunni að bera Ísland saman við nágrannalöndin. Ýmis dæmi hafa verið tekin. Finnland hefur verið nefnt og Þýskaland, en nærtækasta dæmið hefur hins vegar ekki verið nefnt. Það hagkerfi Evrópu sem er langsamlega líkast íslenska hagkerfinu, bæði hvað varðar umfang, samsetningu útflutnings, áherslu í hagstjórn og velferð, er auðvitað færeyska hagkerfið. Það er mun minni munur á umfangi færeyska hagkerfisins og íslenska hagkerfisins en íslenska hagkerfisins og norska hagkerfisins. Hvernig hefur Færeyingum vegnað? Það er mjög áhugavert að bera löndin saman vegna þess að á margan hátt líkjast þau mjög. Bæði hafa sögulega byggt afkomu sína á útflutningi á fiskafurðum, Ísland hefur örlítið fjölbreyttari útflutningssamsetningu en Færeyjar en þó er munurinn ekki verulegur. Þjóðin er einsleit og hún er norræn velferðarþjóð. Hagkerfið er lítið og opið og báðar þjóðirnar standa utan Evrópusambandsins. Sé hins vegar skyggnst í færeyskar hagtölur koma athyglisverðir hlutir í ljós. Lánshæfi færeyska ríkisins er hærra en íslenska ríkisins og skuldir færeyska ríkisins eru mun lægri en íslenska ríkisins. Almennt er halli á rekstri hins opinbera í Færeyjum mun minni en halli á rekstri hins opinbera á Íslandi. Verðbólga er minni í Færeyjum en á Íslandi og atvinnuleysi er minna í Færeyjum en á Íslandi. Þetta hlýtur náttúrlega að vera fyrir það að í Færeyjum sé rekinn alveg sérstaklega góður seðlabanki sem passar vandlega upp á að hagstjórnarmarkmiðum sé náð og að þar ríki stöðugleiki. Þegar grannt er skoðað reynist þó enginn seðlabanki vera í Færeyjum, þvert á móti. Færeyska krónan er hengd utan á dönsku krónuna og hagstjórnarábyrgðin hvílir einungis á herðum færeyskra stjórnvalda. Undir þessari ábyrgð hafa þau risið með mikilli prýði.

Hér áðan voru deilur um hvers konar stjórntæki væru líklegust til að ná árangri í að skapa stöðugleika og góð skilyrði í samfélagi. Var þá annars vegar rætt um ríkisfjármál og hins vegar stýrivexti. Tilfellið er að í hagkerfi eins og íslenska hagkerfinu, þar sem óverulegur hluti skulda er raunverulega háður stýrivaxtabreytingum Seðlabankans heldur er að mjög verulegu leyti í verðtryggðri krónu sem lýtur öðrum lögmálum og er annar gjaldmiðill, þá bítur stýrivaxtatækið illa og þess vegna þarf að beita því með miklu harðari hætti heldur en reyndin er annars staðar þar sem stýrivaxtatæki seðlabanka ná til flestra skuldara. Það þýðir auðvitað að þeir sem eru ekki varðir fyrir stýrivaxtaákvörðunum bera einir byrðarnar og þær byrðar verða umfangsmeiri og þyngri en myndi tíðkast annars staðar. Það grátlega er að öll þau lönd sem er eðlilegt að bera Ísland saman við hvað varðar umfang og stærð eru meðvituð um þau vandamál sem fylgja því að vera hluti af litlu myntsvæði, eru meðvituð um vandamál sem fylgja öfgafullum sveiflum í stýrivöxtum og eru þess vegna ákaflega passasöm með að halda ríkisfjármálum í jafnvægi.

Viðreisn hefur þess vegna lengi varað við því að íslenska ríkið sé rekið með halla en eins og ég vék að í upphafi þá er það sennilega ekki ræðan sem þarf á að halda núna. Nú þurfum við að velta því fyrir okkur hvaða leiðir eru íslenska ríkinu færar til að búa sig undir að takast á við þann samdrátt sem virðist vera hafinn í íslenska hagkerfinu. Hvernig ætlar ríkið að sinna því hlutverki sem eðlilegt er að ríkið sinni, sem er að jafna út hagsveifluna með því að auka eftirspurn þegar framleiðsluslaki er í hagkerfinu og draga úr henni þegar þensla er? Það verður ekki gert með aðhaldi, ekki á þessum tímapunkti. Það hefði þurft að safna í kisturnar á undangengnum árum og það var ekki gert. Eðlilega verður ekki búið til svigrúm með skattahækkunum. Ég get í fljótu bragði ekki séð og við í Viðreisn að það sé nein önnur leið á þessum tímapunkti en að tala alvarlega um að losa hluti ríkisins, losa eignir ríkisins; losa hlut ríkisins, bæði í Íslandsbanka eins og áætlunin gerir ráð fyrir, en líka í Landsbanka og að leita logandi ljósi að öllum mögulegum öðrum leiðum sem hægt er að beita til að rýmka fjárhag ríkisins, draga úr ríkisskuldum og búa í haginn þannig að ríkið geti sinnt hlutverki sínu í að jafna hagsveifluna á komandi misserum.

Ég vildi óska þess að ég væri ekki að biðja þessa ríkisstjórn um það. Ég vildi óska þess að fyrir henni færi fólk sem ég treysti betur til þess að losa þessar eignir, en staðan er einfaldlega þannig að meiri hagsmunir þjóðarinnar kalla á aðgerðir. Til viðbótar þyrfti núna að byrja að undirbúa hvaða aðgerðir ríkið gæti ráðist í til þess að skapa meiri umsvif í hagkerfinu, þá fyrst og fremst hvaða fjárfestingar í innviðum væri hægt að undirbúa þannig að þær væru tilbúnar þegar kemur að því að bregðast við þeirri kreppu sem óumflýjanlega virðist vera að skella á.