155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[14:58]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir að taka tíma í að hlusta á ræðu mína og það er mér mikill heiður. Hann hefur samt kannski ekki hlustað af gríðarlegri athygli vegna þess að ég tók sérstaklega fram að þetta væri ekki tími til aðhalds og ég held að hann hljóti að geta tekið undir að það sé rétt. Ég ætla að skauta yfir allar hans athugasemdir um hvort ég telji aðhaldið nægilegt — já, ég hefði ekki kallað eftir meira aðhaldi en í þessu frumvarpi. Hann vék hins vegar að Covid og það er einmitt athyglisvert að íslenska ríkið var miklu lengur að ná niður útgjöldum eftir Covid heldur en nokkurt annað ríki sem við berum okkur saman við og af ástæðum sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra getur alveg örugglega útskýrt fyrir okkur. Þetta varð til þess að þessi skellur varð langvarandi og leiddi inn í næsta skell. Ég geri mér alveg grein fyrir því að það fylgir kostnaður jarðhræringum í Grindavík og allir eru sammála um að við þurfum að bera hann sameiginlega. Á endanum er punktur minn fyrst og fremst þessi hér: Við þurfum að gera ráð fyrir því að framtíðin sé óviss og hlutverk ríkisins og ríkisfjármálanna er að reyna að draga úr skellinum þegar óvissuatburðir eiga sér stað. Og það hefði þurft, held ég, að hlusta á nöldur mitt um aðhald á árunum eftir Covid þegar okkar útgjöld voru enn þá mjög há samanborið við öll nágrannalöndin sem, af því að það varð strax viðsnúningur í hagkerfinu, kipptu að sér hendinni í útgjöldum og náðu að snúa þessari þróun við miklu hraðar. Það tókst okkur ekki. Á þessu kann hæstv. ráðherra alveg örugglega skýringar.