fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Nei, ég tók einmitt eftir því í ræðunni að þingmaðurinn var ekki að kalla eftir aðhaldi, enda væri ekki mjög skynsamlegt að fara að bæta aðhaldi ofan í það sem við erum að gera núna. Þess vegna held ég að þetta 0,9% aðhald sé allverulegt og muni klárlega hjálpa til við að ná verðbólgunni í þann takt sem Seðlabankinn er að spá. Við erum með mjög háa stýrivexti, af því að ég heyrði hv. þingmann velta vöngum yfir því að ríkið þyrfti að auka ríkisumsvif og koma af krafti inn í hagkerfið til að tryggja að við færum ekki inn í samdrátt, og við getum alveg óttast það ef svona háir stýrivextir eru til lengri tíma að þeir geti hreinlega slökkt á hagkerfinu. Við þekkjum að þeir virka mjög langt fram í tímann. En er ekki miklu stærra tækifæri hjá Seðlabankanum fólgið í því að geta lækkað vexti mjög hratt og mikið til að örva, frekar en að ríkið fari inn í vaxandi útgjöld til að örva hagkerfið á Íslandi? Eru ekki miklu sterkari og hraðari tæki fólgin í stýrivaxtatæki Seðlabankans á sama hátt og það er að vinna gegn okkur núna?
Svo bara örstutt í lokin, af því að hv. þingmanni varð tíðrætt um Færeyjar. Mér fannst hann skauta nokkuð létt yfir staðreyndir sem eru alla vega mér vitanlegar og ég býst við að hann viti líka, að launakostnaður í Færeyjum er umtalsvert lægri en á Íslandi, umtalsvert, verulega, enda stóðu þar yfir langvarandi verkföll núna í haust til að reyna að fá leiðréttingu launafólks á því. Hin staðreyndin er sú að þar er auðvitað fábrotnara atvinnulíf enn þá. Þar er þó bæði fiskeldi og sjávarútvegur og það gengur rosa vel í Færeyjum. Það er eftirtektarvert að fylgjast með þeim og ég er sammála að við eigum að horfa oftar til þeirra. En þegar það bjátar eitthvað á og fólk fær ekki atvinnu við hæfi þá flytur það til Danmerkur. Færeyjar eru svolítið eins og landsbyggðin á Íslandi: Þegar eitthvað bjátar á þá flytja menn til Reykjavíkur.