155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[15:02]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V) (andsvar):

Ég þakka hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra fyrir spurningarnar. Á sama hátt og stýrivaxtatækið á Íslandi — það þarf að beita því með miklu umfangsmeiri hætti til þess að hafa áhrif á eftirspurn í hagkerfinu vegna þess á hversu fáa það leggst. Það virkar jafn illa upp og niður, því miður. Það er alls ekki þannig, og aftur getur verið að ég hafi ekki verið nógu skýr eða að hæstv. ráðherra hafi ekki hlustað fyllilega á það sem ég var að segja, að ég hafi verið að leggja til að ríkisútgjöld yrðu aukin núna — jesús kristur, við þurfum að sjá til hvort þetta reynist vera kreppa eða ekki og hversu djúp hún reynist. Þá þarf hins vegar að vera til bæði svigrúm og áætlanir um hvað ríkið ætlar að gera. Hafandi verið innviðaráðherra veit hæstv. ráðherra það manna best að innviðir á Íslandi þurfa á verulegri fjárfestingu að halda. Það er skynsamlegt að ráðast í slík verkefni í niðursveiflu. Því miður sýnir sagan að þegar ríkið ætlar að gera það þá taka ákvarðanir svo langan tíma að þegar loksins er farið af stað er aftur komin uppsveifla og ríkið er í staðinn fyrir að draga úr dýpt kreppunnar farið að ýta undir þenslu, þegar loksins kemur að ákvörðununum. Þetta er lærdómur sem við getum dregið án þess að vera að benda fingrum pólitískt hvor á annan.

Hvað varðar Færeyjar finnst mér athyglisvert í þessum samanburði öllum að skoða landsframleiðslu á mann. Ég minnist þess að við höfum oft, eins og ráðherrann benti á sjálfur, litið á Færeyjar svolítið eins og landsbyggðina, gæti verið partur af henni á Íslandi, og kannski ekki fyllilega gert okkur grein fyrir hvernig þróunin hefur verið. En tilfellið er að landsframleiðsla á mann í Færeyjum er orðin meiri heldur en á Íslandi. Það gerðist (Forseti hringir.) fyrir svona sex eða sjö árum síðan. Ráðherra bendir á (Forseti hringir.) að Færeyingar geti sótt til Danmerkur en það geta auðvitað Íslendingar líka, og hafa gert, þegar á bjátar (Forseti hringir.) og ekki nóg með það heldur eru hér eins og 70.000 útlendingar sem líka eru færanlegir. (Forseti hringir.) Ég hygg því að munurinn sé nú lítill á Íslandi og Færeyjum hvað þetta varðar.