fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að segja að ég vonast til þess að þetta fyrirkomulag umræðna sem við höfum gert tilraunir með á undanförnum árum og hefur ýmist verið samkomulag um eða ekki, haldi áfram. Mér þykir það vera vel heppnað í þessu formi, að ráðherrar komi og séu til svara í skipulagðri umræðu. Varðandi hlutdeild forsætisráðuneytisins þá eru það nú kannski ekki miklar fréttir hér í þessa umræðu, það eru ekki miklar breytingar á hlutdeild forsætisráðuneytisins eða á römmum ráðuneytisins milli ára og engin stórtíðindi þar. Það verður þó að nefna að nýlega var gerð breyting á forsetaúrskurði sem færði jafnréttis- og mannréttindaskrifstofu ráðuneytisins yfir í félags- og vinnumarkaðsráðuneytið og þarf að gera breytingar sem taka tillit til þess í fjárlögunum. Sömuleiðis er þjóðgarðurinn á Þingvöllum nú aftur kominn í forsætisráðuneytið eftir að hafa verið vistaður í umhverfisráðuneytinu undanfarin ár.
Eins og sést á útgjaldarömmum ráðuneytisins þá eru þar svo sem ekki mikil tíðindi og ég ætla frekar að nota tímann til að ræða stóru myndina. En ég verð að segja að það er dálítið sérstakt að fylgjast með því hvernig menn sveiflast milli þess að komast að þeirri niðurstöðu í ríkisfjármálum að annaðhvort standi til að leggja niður opinbera þjónustu þar sem henni sé ekki sinnt nægilega vel með framlögum og svo sveiflast umræðan yfir í það að það sé allt of mikið gert, ríkisútgjöldin hafi vaxið of mikið og svo í framhaldi af því komast menn að þeirri niðurstöðu að vaxandi ríkisútgjöld séu eina ástæða verðbólgunnar í landinu. En ekkert af þessu er rétt, ekkert af þessu. Við erum í fjárlögum að tala um stóru myndina í því sem er að gerast í ríkisfjármálunum. Stóra myndin er sú að það er sama hvert við lítum — ef við lítum til umsagnaraðila og ég er þá kannski ekki síst að vísa til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Seðlabankans, þá eru þeir sammála um það að við erum áfram að auka aðhald í ríkisfjármálunum.
En hvers vegna er það þá að sumir telja að þetta sé allt á hinn veginn? Hvers vegna ætti Seðlabankinn, sem samkvæmt lögum á að stuðla að verðstöðugleika, að halda því fram að við séum að auka aðhaldið ef það er ekki rétt? Menn ættu kannski að spyrja sig að því, af því að þetta er allt skýrt. Afkoman hefur batnað ár eftir ár eftir einhverja dýpstu niðursveiflu sem við höfum séð á lýðveldistímanum. Við erum í því sambandi vissulega enn með halla en í áætlanagerð okkar þá höfum við verið að vanmeta gríðarlega afkomuna. Mér finnst í raun og veru alveg kostulegt sem ég hef heyrt hér í umræðunni um ríkisfjármál að ríkissjóður telji að hann hafi mikinn ávinning af því að hafa verðbólgu vegna þess að það muni skila sér svo ríkulega á tekjuhliðinni sem muni aftur bæta afkomuna. Þetta var sagt síðast í gær af talsmanni Miðflokksins í umræðu um stefnuræðu og sýnir fullkominn misskilning, algjört skilningsleysi á því að ríkissjóður hefur að sjálfsögðu líka veruleg útgjöld af verðbólgu og áhrifin á afkomuna eru alls ekki þau sem menn láta í skína.
Staðreynd málsins er sú að raunaukning ríkisútgjalda í tíð þessarar ríkisstjórnar er nokkurn veginn í takt við vöxt hagkerfisins. Við hljótum að þurfa að taka tillit til mannfjöldaaukningar frá árinu 2017 og sömuleiðis þeirra launabreytinga sem hafa orðið í landinu á undanförnum árum sem samið er um á almennum vinnumarkaði og ríkið hefur þá stefnu að halda sig innan þeirra marka.
Þetta vil ég hafa sagt hér í tilefni af stórum orðum sem hafa fallið um þetta. Við erum augljóslega á réttri leið. Við erum reyndar langt á undan áætlun miðað við fjármálaáætlun fyrri ára. Við erum komin langt á undan áætlun með mun hagstæðari skuldahlutföll, betri afkomu og heilt yfir sterkari stöðu en á horfðist. Verðbólgan er sömuleiðis á niðurleið. Þetta segi ég þrátt fyrir að vera þeirrar skoðunar að víða sé hægt að halda áfram að hagræða, (Forseti hringir.) endurraða og forgangsraða útgjöldunum og leita leiða til að gera hlutina fyrir færri krónur og með betri hætti en gert er í dag.