fjárlög 2025.
Forseti. Á þingmálaskrá ríkisstjórnarinnar er frumvarp til laga um breytingu á lögum um veiðigjald sem á að skila ríkissjóði 2 milljörðum kr. í viðbótartekjur á næsta ári samkvæmt þessum fjárlögum. Þetta er reyndar ein af fáum viðbótum sem stendur til að lögfesta á tekjuhliðinni ef frá er talið kílómetragjaldið. Við í Samfylkingunni höfum bent á mikilvægi þess að grípa inn í þar sem þenslan er til staðar með ákvörðunum á sviði ríkisfjármála, t.d. með gjöldum á sviði auðlinda, í stað þess að kveða niður þenslu með verðbólgusköttum. Það er ljóst að svigrúm er í sjávarútvegi og í þessu lagafrumvarpi er verið að leggja til að hækka veiðigjald á uppsjávartegundir og koma í veg fyrir að veiðigjald sé frádráttarbært frá tekjuskatti.
Nú vorum við hæstv. forsætisráðherra saman á fundi SFS um veiðigjöldin nýlega og þar sagði hæstv. ráðherra að það væri bullnálgun að þykja það athugavert að mikil arðsemi í sjávarútvegi flæddi inn í aðrar atvinnugreinar. Það er hverjum manni augljóst, forseti, að það er til marks um mikið svigrúm ef leita þarf leiða um allt hagkerfið til að fjárfesta hagnaði í uppþembdu kerfi og e.t.v. væri skynsamlegra, ég tala nú ekki um réttlátara, ef hluta af arðseminni væri dreift á staði í samfélaginu þar sem slík þensla er ekki til staðar með hærri veiðigjöldum, sem gæti styrkt opinbera þjónustu hringinn í kringum landið eða vegið á móti þenslu.
Hæstv. forsætisráðherra var spurður á fundinum hvort breytingar á veiðigjöldum sem boðaðar væru í frumvarpi hæstv. matvælaráðherra væru sameiginleg sýn ríkisstjórnarinnar. Ráðherra sagði að frumvarpið hefði í raun aldrei verið rætt innan ríkisstjórnarinnar, með leyfi forseta:
„Þetta slær mig ekki vel og þetta slær mig ekki sem sannfærandi tillaga ef ég ætla að segja alveg eins og er.“
Ég spyr: Er það því bullnálgun að gera ráð fyrir 2 milljörðum til viðbótar af veiðigjaldinu í fjárlögum næsta árs eins og nú liggur fyrir? Mun flokkur hæstv. forsætisráðherra styðja frumvarpið?