fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Þegar ég sagðist styðja frumvarpið, af því að hér var talað um frumvarpið, sem er væntanlega fjárlagafrumvarpið sem við erum að ræða hér, þá stend ég með því og ég ítreka það. Þegar spurt er um frumvarpið sem er á þingmálaskránni þá er það í fyrsta lagi rangt hjá hv. þingmanni að það standi í þingmálaskránni sá texti að það standi til að veiðigjöldin dragist frá tekjuskatti. Það stendur bara einfaldlega ekki í þingmálaskránni og þess vegna er engin ástæða til að fara að ræða efnislega um frumvarp sem ekki er komið fram á þingvetrinum. Þetta er a.m.k. misskilningur, frumvarpið er ekki komið fram og við stöndum með frumvörpum sem koma hingað inn í þingið.
Síðan er það hitt að hv. þingmaður veit væntanlega að veiðigjöldin sem innheimtast á næsta ári eru vegna veiðitímabils sem liðið er þannig að við erum ekkert að ræða um það að í þessu fjárlagafrumvarpi sem er rætt í dag verði að sjá áhrif af frumvarpi (Forseti hringir.) sem ekki er enn komið fram um veiðigjaldabreytingar vegna þess að tekjurnar á næsta ári verða vegna liðins tíma.