155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:14]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegur forseti. Þegar hæstv. forsætisráðherra vill hreykja sér af góðum árangri í efnahagsmálum þá talar hann um verðbólguna án húsnæðisliðarins í vísitölunni, þótt hann megi ekki heyra það nefnt að hann sé tekinn úr henni eins og Flokkur fólksins hefur lagt fram frumvarp um sex sinnum. Án hans, sagði forsætisráðherra hreykinn, er verðbólgan ekki 6% heldur 3,6%, og já, það munar svo sannarlega um minna. Hér eru nokkrir punktar úr ræðu hans í gær, með leyfi forseta:

„Málefni fjölskyldunnar í víðum skilningi þess orðs standa hjarta okkar næst. Hvernig er að fæðast, lifa, stofna fjölskyldu og eldast á Íslandi?“

„Kaupmáttur hér er einfaldlega í sérflokki á Norðurlöndunum …“

„Nú mælist verðbólga 6%, en höfum í huga að án húsnæðisliðarins er hún um 3,6%.“

Já, hvernig er að fæðast, lifa, stofna fjölskyldu og eldast á Íslandi? Það er sorglegt að forsætisráðherra virðist í alvörunni telja það verulega gott þegar raunveruleiki svo margra er allt annar. Ætlar hæstv. forsætisráðherra að láta það líðast að haldið sé áfram að herða snöruna um heimili landsins með stjarnfræðilegri vaxtabyrði þó að verðbólgan sé komin niður fyrir 4% og því ásættanleg samkvæmt yfirlýstum markmiðum sem eru skilgreind í lögum? Verðbólgan er 3,6% án húsnæðisliðarins. Ég spyr því: Eiga vextir bara að vera áfram háir meðan ríkisstjórn og sveitarfélög dúlla sér við að byggja allt það sem þau hefðu átt að vera búin að byggja fyrir löngu? Eiga bankarnir bara að fá að draga áfram til sín fé heimilanna á meðan unnið er í því? Hvernig ýtir það undir uppbyggingu að vaxtapína þau heimili sem þegar eru til? Og er ekki staðreyndin sú að hátt vaxtastig er að hamla uppbyggingu á húsnæðismarkaði? Er ekki kominn tími til að snúa við þessari glötunarbraut? Verðbólgan er 3,6%. Það er ekki með nokkru móti hægt að réttlæta þetta vaxtaokur stundinni lengur, eða hvernig ætlar forsætisráðherra að réttlæta það? Hér tala ráðherrar og þingmenn um að það að ná niður verðbólgu þannig að vextir geti lækkað verði stærsta verkefni þessa vetrar. Ef ekki er hægt að lækka 9,25% meginvexti þegar verðbólgan er komin niður í 3,6%, hvenær er það þá hægt?

(Forseti hringir.) Ég spyr því: Hversu mikið þarf verðbólgan að lækka til að ríkisstjórnin stöðvi þessa geðveiki sem er í gangi og rétti hlut heimilanna í landinu?