fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég ætla aðeins að setja hlutina í samhengi. Þegar laun hækka á Íslandi langt, langt umfram það sem er að gerast á Norðurlöndunum og launabreytingar eru upp undir 8% og jafnvel meiri, þá er ekki líklegt að vaxtastigið á Íslandi verði hið sama og á við á Norðurlöndunum. Það eru afar fá dæmi um að menn hafi náð góðum árangri í baráttu við verðbólgu á sama tíma og laun hækka stöðugt um jafn háar fjárhæðir og á við hér. Hvers vegna er þetta að gerast? Þetta er m.a. að gerast vegna þess að hér hafa verið mjög vaxandi umsvif í hagkerfinu. Það hefur orðið mjög mikil íbúafjölgun á Íslandi. Það er gott að búa á Íslandi. Margir vilja koma hingað til að búa. Þeir koma hingað til að vinna vegna þess að launin eru góð. Margir ferðamenn vilja koma hingað, það hefur kallað á mikinn fjölda starfsmanna og við fengum mjög sterka viðspyrnu eftir heimsfaraldurinn. Sömuleiðis hafa launahækkanir aukið á einkaneyslu. Þetta samhengi hlutanna hljóta menn að ætla að hafa í huga.
Hv. þingmaður spyr mig hversu lengi ég ætli að hafa vextina þar sem þeir eru. Þetta kallar auðvitað á ákveðna grundvallarumræðu eins og t.d. hvort hv. þingmaður styður það að við séum með sjálfstæðan Seðlabanka, hvort hv. þingmaður er með eitthvert innlegg annað en það að ríkisstjórnin eigi að þvinga fram vaxtalækkanir. Við þurfum auðvitað að ræða það með málefnalegum hætti hvort þær aðgerðir ríkisstjórnarinnar sem hafa allar verið að styðja við aukið framboð húsnæðis — ég vek athygli á því að það er meira framboð af íbúðum til sölu í dag heldur en var fyrir ári síðan (Forseti hringir.) og búið að byggja um 1.800 íbúðir á fyrri hluta ársins — séu mikilvægt innlegg, eins og samið var um við aðila vinnumarkaðarins, til að lækka húsnæðislánin.
(Forseti (ÁsF): Ég minni hæstv. ráðherra á ræðutímann.)