fjárlög 2025.
Virðulegur forseti. Ég bara ræddi ekkert um samanburð við Norðurlöndin, ég var ekkert að ræða það. (Gripið fram í.) Ég spurði: Af hverju þurfa meginvextir að vera 9,25% í, eins og hæstv. ráðherra sagði sjálfur, 3,6% verðbólgu? Það var það sem ég ræddi um. Það er staðreynd að það þarf að byggja upp húsnæði og að háir vextir eru að hamla því. Já, það þarf að vera — ég er ekki á móti sjálfstæði Seðlabankans en á því þurfa að vera varnaglar. Það gengur ekki að hægt sé að ganga svona fram, með svona ofbeldi gagnvart heimilum landsins. Þetta er ekkert annað. Þau eiga sama séns og ef þau væru í húsasundi með hníf við hálsinn og geta ekkert gert í þessu, verða bara að borga eða missa heimilin. Hversu lengi á það að viðgangast? Og já, ég tel að kjörnir fulltrúar, fólk sem hefur boðið sig fram og segist ætla að vinna fyrir fólkið í landinu, eigi að stöðva svona þegar hingað er komið. (Forseti hringir.) Það er bara þannig og það þarf að gera það. Við getum farið í þessa umræðu alla leið en staðreyndin er sú (Forseti hringir.) að það hefur enginn kosið fólkið í Seðlabankanum, það hefur hins vegar kosið hæstv. ráðherra.