fjárlög 2025.
Forseti. Hæstv. ráðherra hlustaði greinilega ekki á ræðuna mína áðan þar sem ég útskýrði hvernig það er í rauninni ekki einhver stjórnlaus útgjaldavöxtur heldur eru útgjöld ríkisins undir meðaltali, svona langtímameðaltali, miðað við stærð hagkerfisins. En það er nefnilega svo að hérna fáum við oft frumvörp sem eru kostnaðarmetin af ríkisstjórninni og úr verður að það kostnaðarmat er stjarnfræðilega rangt, t.d. í málefnum fatlaðs fólks, nýlegt risastórt dæmi. Þess vegna verðum við að spyrja hér á Alþingi: Er bara verið að blekkja okkur með þessu kostnaðarmati? Hérna eru rosalega fín og falleg lög, þau kosta ekkert rosalega mikið. Skrifið undir þau, fáið umsagnir og ýmislegt svoleiðis og fullyrðingar. Nei, nei, þetta er alveg rétt kostnaðarmat. En þetta reynist svo vera milljörðum og milljörðum dýrara en átti að vera. Hvernig er það á ábyrgð Alþingis að spyrja hvort við séum að samþykkja lög sem eru of dýr þegar það er beinlínis ekki verið að segja okkur satt?