155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:29]
Horfa

Jódís Skúladóttir (Vg):

Virðulegi forseti. Í september 2015 samþykktu Sameinuðu þjóðirnar alþjóðlega áætlun um sjálfbæra þróun til ársins 2030 sem byggir á 17 heimsmarkmiðum og 169 undirmarkmiðum. Framtíðarsýn heimsmarkmiðanna er sjálfbær veröld þar sem hungri og sárafátækt hefur verið útrýmt, dregið hefur úr ójöfnuði innan og á milli ríkja, mannréttindi allra eru virt, öll eru jöfn fyrir lögum og lifa við frið og öryggi í daglegu lífi. Í stefnu Vinstri grænna er lögð áhersla á að við tengjum saman allar einingar stjórnkerfisins til að ná markmiðum okkar í umhverfis- og loftslagsmálum undir heitinu Sjálfbært Ísland.

Árið 2022 samþykkti ríkisstjórnin tillögu þáverandi forsætisráðherra að setja slíkan samráðsvettvang á fót með breiðari skírskotun, m.a. með því að fylgja heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Seinustu ár hefur þessi samþættingarvinna verið í höndum forsætisráðherra þar sem m.a. var kynnt hvítbók um sjálfbært Ísland í febrúar þessa árs. Þar eru stórir þættir til umræðu. Þó að stefnan Sjálfbært Ísland sé ekki enn samþykkt þá eru margir þættir sem við þurfum augljóslega að stíga sterkt inn í. Í þessum sal hefur verið mikið rætt um efnahagslega sjálfbærni og umhverfis- og loftslagsmál en fleiri þættir liggja líka undir, eins og réttlát umskipti fyrir alla hópa samfélagsins, ábyrg neysla og framleiðsla og hnattræn ábyrgð okkar sem samfélags.

Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvernig hann hyggst halda þessari vinnu áfram og hvernig það mun skila sér í vinnu við fjárlög framtíðar.