fjárlög 2025.
Forseti. Það gleður mig að geta greint frá því hér að ég tók stefnu um sjálfbært Ísland eða um sjálfbæra þróun til ársins 2030 til umfjöllunar í ríkisstjórn í sumar og fékk hana þar samþykkta. Það gerðist núna í júlí. Það er rétt sem hv. þingmaður rekur hér, að þetta var eitt af áherslumálum hjá þessari ríkisstjórn í tíð fyrrverandi forsætisráðherra og ber sérstakur starfsmaður í forsætisráðuneytinu ábyrgð á utanumhaldi. Nú fyrir skemmstu sat ég fund með öllum helstu þátttakendum í þessu starfi, samstarfsaðilum um stefnuna. Þar koma margir að málum. Það er atvinnulífið en líka hin ýmsu samtök í landinu, fyrir utan auðvitað sveitarfélögin og Stjórnarráðið. Ég held að það hafi verið nokkuð farsæl nálgun að koma fyrir í forsætisráðuneytinu eins konar miðstöð um þessi mál og leggja síðan út í samfélagið stefnu fyrir einstaka markmið og vekja athygli á leiðum fyrir hvort sem er atvinnurekstur, frjáls félagasamtök, aðila vinnumarkaðarins eða aðra sem vilja leggja af mörkum inn í markmiðin, leggja fram bæði gögn og ábendingar um leiðir til árangurs. Sem betur fer hefur verið mjög vaxandi áhugi í samfélaginu öllu til þess að feta þessa slóð áfram í átt að auknum árangri, vegna þess að markmiðin eru svo sannarlega göfug og snúast ekki eingöngu um loftslagsmálin, þó að þau séu snar þáttur í heimsmarkmiðunum. Það verður síðan að vera mat hvers fagráðherra fyrir sig hvernig forgangsröðun fjármuna verður innan ramma hvers fjárlagaárs, (Forseti hringir.) en við eigum auðvitað að samþætta stefnuna inn í fjármálaáætlun.