fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Eitt af markmiðum verkefnisins Sjálfbært Ísland er að hraða aðgerðum til að ná markmiðum um sjálfbæra þróun eins og þau birtast í velsældaráherslum ríkisstjórnarinnar. Fyrirrennari hæstv. forsætisráðherra, Katrín Jakobsdóttir, lagði mikla áherslu á vinnu við velsældarmarkmið og að við þyrftum að hafa aðra mælikvarða á velsæld íbúa landsins heldur en einfaldlega hagvöxt. Nú hefur umræðan hér um fjárlögin snúist að miklu leyti um hagvöxt, kaupmátt og verðbólgu en síður um velsæld í breiðari skilningi. Hvað felst í velsældaráhrifum í fjárlagagerð og hvernig birtist það í þessum fjárlögum? Hefur hæstv. ráðherra hug á því að halda áfram þeirri góðu vinnu sem svo mikill metnaður var lagður í við upphaf kjörtímabilsins?