fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Þetta hefur verið mjög skemmtileg vinna sem við höfum farið í á undanförnum árum og varðar velsældarmælikvarðana. Ég hef komið inn á það í fyrri ræðum á undanförnum árum að það kom mér skemmtilega á óvart að Hagstofan var að safna svo miklum gögnum um þessi mál sem við vorum ekki að nýta til að taka ákvarðanir. Ríkisstjórnin samþykkti ákveðna mælikvarða um félagslega, umhverfislega og efnahagslega þætti sem við vildum sérstaklega horfa til. Kannski er það sem reynslan hefur sýnt okkur eftir að þessari vinnu var hrundið af stað í Stjórnarráðinu að þetta getur verið mikið þolinmæðisverk, vegna þess að sumir mælikvarðanna, þó að við getum verið mjög einhuga um að beita þeim, hreyfast ekki mjög hratt á einu kjörtímabili en þeir geta gert það yfir áratug eða jafnvel lengra tímabil. Það skiptir máli að hefjast handa snemma til að uppskera síðan inn í framtíðina. Að því leytinu til er það dálítil áskorun (Forseti hringir.) fyrir hverja og eina ríkisstjórn að sýna að áherslur hennar á einu kjörtímabili hafi valdið miklum straumhvörfum, en við samþættum þessa stefnu inn í fjármálaáætlunina eins og hægt er.
(Forseti (ÁsF): Ég minni hæstv. ráðherra á ræðutímann.)