fjárlög 2025.
Forseti. Nýlega hefur Hagstofan gefið út bráðabirgðatölur um hagvöxt annars ársfjórðungs 2024 sem benda til þess að annan ársfjórðunginn í röð sé samdráttur í íslenska hagkerfinu sem er hin fræðilega skilgreining á samdráttarskeiði. Nú hefur ríkisstjórnin lagt fram fjárlög og í þeim er aðhald. Ég er ekki hingað kominn til að gagnrýna þau verk. Það er hins vegar ljóst að rými ríkissjóðs til að takast á við samdráttarskeið reynist það vera langt, sérstaklega á sama tíma og vaxtakostnaður hins opinbera er eins hár og raun ber vitni og verðbólga hefur ekki enn þá lækkað, er takmarkað. Mig langar að spyrja hæstv. forsætisráðherra um þessa þröngu stöðu þar sem augljóslega þyrfti að vera svigrúm hjá hinu opinbera til að bregðast við samdrætti, reynist hann lengri en mælingar hafa hingað til sýnt. Til þess að bregðast við því þyrfti að skapa rými hjá ríkissjóði sem ekki verður gert með aðhaldi á þessum tímapunkti og við hæstv. forsætisráðherra erum örugglega sammála um að það ætti ekki að gera með skattahækkunum. Þá er í sjálfu sér lítið annað eftir heldur en sala ríkiseigna.
Spurning mín snýr að því: Er til umræðu á þessum tímapunkti í ríkisstjórn að auka við áform um sölu ríkiseigna?