fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Við erum með í sjálfu sér mjög metnaðarfull áform um sölu ríkiseigna með því að hafa Íslandsbanka á dagskrá. Það er gríðarlega verðmæt eign sem búið er að skrá og fjármálaráðherra hefur boðað að hafinn sé undirbúningur að því að geta losað um eignarhlut ríkisins í áföngum.
Mig langar til að segja varðandi hagtölurnar sem vísað var til að ég held að við hljótum að vera sammála um að þeim verði að taka með ákveðnum fyrirvara þar sem tölur um samdrátt á þessum tímapunkti ríma ekki við allt annað eða margt annað, skulum við segja, sem við sjáum í hagkerfinu, t.d. núna síðast að komur ferðamanna hafi verið bara nokkuð sterkar í sumar. Eins líka hitt að endurskoðun á hagtölum hefur að jafnaði verið frekar upp á við á undanförnum árum. En mér finnst kannski varðandi svigrúm ríkissjóðs til þess að örva hagkerfið sem er komið í svona kólnun að þá hljóti að koma fyrst til skoðunar fyrir Seðlabankann að lækka vextina. Það getur ekki verið að við förum að velta fyrir okkur svigrúmi ríkissjóðs til þess að örva hagkerfið á sama tíma og vextir eru 9,25% í Seðlabankanum. Það hlýtur að vera frekar merki um að aðhaldsaðgerðir Seðlabankans og annað aðhald í hagkerfinu sé að skila jafnvel meiri árangri en margir vilja láta vera. Það hlýtur þá að fara að birtast tiltölulega hratt í verðbólgutölunum. En ég tek undir það að það getur styrkt stöðu ríkissjóðs mjög að selja ríkiseignir og mér finnst vel koma til greina að ríkið selji aðrar eignir heldur en Íslandsbanka og færi út á markaðinn. Ég hef í því sambandi t.d. nefnt Póstinn, Íslandspóst, svo dæmi sé nefnt.