155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:40]
Horfa

Daði Már Kristófersson (V):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svör. Nú verður að viðurkennast að hæstv. forsætisráðherra, í fyrri verkum sínum, hefur ítrekað bent á að það er meginmarkmið Seðlabanka Íslands að tryggja verðstöðugleika og á meðan verðstöðugleika er ekki náð er lítil von til þess að bankinn horfi til annarra áhrifa af ákvörðunum sínum þannig að ég hygg nú að skynsamur stjórnmálamaður ætti að undirbúa sig fyrir að þetta verkefni falli á ríkið nokkuð flatt. En auðvitað vona ég eins og hæstv. forsætisráðherra nefndi að við séum ekki að horfa upp á samdrátt.

Í áframhaldi af spurningu minni þá tók ég eftir að hann nefndi Póstinn sem samkvæmt rekstraryfirlitum er ekki mikils virði kannski. En Landsbankinn, kemur til greina að ríkið selji Landsbankann? Ég tel að ég og hæstv. forsætisráðherra séum sammála um að aðkoma ríkisins að fyrirtækjum í samkeppnisrekstri sé óheppileg, sérstaklega á þessum litla markaði, og saga íslenska ríkisins í rekstri banka er ekki sérstaklega burðug. (Forseti hringir.) Kemur til greina að selja líka hluti í Landsbankanum?