fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þessar ábendingar og ég ætla að neita að trúa því að við lendum bæði í viðvarandi verðbólgu og samdrætti, verðbólga er að lækka og ég lít þannig á stöðuna að verðbólga sé smám saman að þokast í rétta átt, þ.e. við séum ekki að lenda í samdráttarskeiði með hárri verðbólgu.
Varðandi Landsbankann þá höfum við sagt í þessari ríkisstjórn að það er forgangsatriði að selja Íslandsbanka. Landsbankinn hefur ekki verið á dagskrá hjá þessari ríkisstjórn hvað það varðar að ríkið losi um eignarhlut sinn. Það er hins vegar mín pólitíska sýn að ríkið ætti að láta það duga að fara með um 40% hlut í Landsbankanum og það mætti skrá bankann og veita stjórnendum hans meira aðhald með því að fá dreifða eignaraðild að bankanum. Það gefur lífeyrissjóðunum líka fjölbreyttari kosti. Ég tel að það myndi auka samkeppnina á fjármálamarkaði og losa um verulegar fjárhæðir fyrir ríkissjóð sem gætu gagnast til þess einmitt, já, að lækka vaxtakostnað ríkissjóðs.