fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég vil af þessu tilefni í fyrsta lagi vekja athygli á því að samsetning vísitölunnar tók breytingum nýlega þar sem sérstaklega var horft til þess hvernig húsnæðisliðurinn er samsettur í vísitölunni. Við vonumst til þess að það skili þeim árangri að það dragi úr sveiflum og gefi í raun og veru réttari mælingu á þenslustigið heilt yfir í landinu. Ég tel að það sé mjög réttmæt ábending hjá hv. þingmanni að spyrja þeirrar spurningar hvort Seðlabankinn muni geta náð árangri í baráttunni við verðbólguna með því að viðhalda þetta háum vöxtum ef vandamálið sem aðallega þarf að leysa er framboðsskortur á húsnæði. Það er alveg réttmæt spurning. Það er sömuleiðis mjög verðugt pólitískt viðfangsefni að ræða hér hvernig við getum best tryggt með stjórnvaldsaðkomu og stjórnvaldsaðgerðum aukið framboð. Við höfum gert ýmislegt. Við höfum gert það með yfirlýsingum sem hafa tengst gerð kjarasamninga. Ég hef hér verið að rekja dæmi sem annars vegar eru til þess fallin að auka framboð sérstaklega á félagslegu húsnæði. Hlutdeildarlánin eru þarna og við erum með stofnstyrkina ásamt með sveitarfélögunum inni í uppbyggingu á slíku húsnæði og svo höfum við líka verið að hækka húsnæðisbætur. Við höfum hækkað barnabætur til barnafjölskyldna og við höfum hvatt sveitarfélögin og gert rammasamninga um aukið lóðaframboð. En sveitarfélögin verða auðvitað líka að skila lóðum til verktaka. Það sem við þurfum að vera meðvituð um hér á sama tíma er hversu mikil (Forseti hringir.) mannaflaþörf er á byggingamarkaði. Það er ekki alveg augljóst að við getum framleitt mikið fleiri íbúðir en við erum að gera í augnablikinu, (Forseti hringir.) a.m.k. er eftirspurn eftir vinnuafli mest í þeim geira.
(Forseti (ÁsF): Forseti minnir ræðumenn á þann ræðutíma sem er í boði fyrir hvern og einn.)