fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Málið er þetta: Við búum við markaðsbrest í húsnæðismálum, algjöran. Það fer enginn verktaki að byggja með 9,25% stýrivexti. Það fer enginn einstaklingur með venjuleg laun að kaupa íbúð í þessu vaxtastigi. Það er allt botnfrosið. Það er markaðsbrestur sem ríkið þarf að koma inn í af fullum krafti og sjá til þess að eftirspurn eftir húsnæði sé fullnægt, að verðið komi niður og að verðbólga verði ekki keyrð áfram af húsnæðisliðnum. Það þarf að taka hann út tímabundið og sjá til þess að byggt verði nægilega mikið. Það er það sem ríkið þarf að gera. Það gerði það 1964 með júnísamkomulaginu þegar Íslendingar komust loksins út úr braggahverfunum, 20 árum eftir stríðið, úr þeirri niðurlægingu sem það var. Núna þurfum við að stíga aftur fast niður fæti og sjá til þess að það verði byggt nóg. Það erum við ekki að gera. Það er grundvallaratriði. Það er þetta sem málið snýst um.
Ég spyr: Hvernig stendur á því að það er ekki gert? Húsnæðisliðurinn tekinn út úr dæminu, við erum með 3,6% verðbólgu og förum að byggja af krafti. (Forseti hringir.) Það yrði meira að segja hagvöxtur með þessu. Kínverjar gerðu þetta, þeir byggðu hagvöxt sinn lengi upp á húsbyggingum, (Forseti hringir.) sem eru reyndar tómar. Við færum létt með að ná tökum á verðbólgunni ef við réðumst að rótum vandans, sem eru húsnæðismálin.