fjárlög 2025.
Virðulegi forseti. Ég held að það sé mikilvægt að gera greinarmun á því að hve miklu marki Seðlabankinn lítur sérstaklega til þróunar húsnæðisverðs og húsnæðisliðarins í vísitölu neysluverðs við vaxtaákvarðanir sínar og síðan þess sem hv. þingmaður er að nefna hérna, finnst mér, þ.e. að taka einfaldlega húsnæðisliðinn út úr vísitölunni. Það held ég að væri aðgerð sem engin önnur þjóð er að gera. Við höfum hins vegar breytt því hvernig húsnæðisliðurinn reiknast inn í vísitölunni og mér finnst hitt vera stærra álitamál hvernig Seðlabankinn á að meta þátt húsnæðisliðarins í vísitölunni þegar hann er að taka vaxtaákvarðanir eins og ég rakti hérna áðan. En ég segi aftur, af því að hv. þingmaður kallar eftir auknu framboði og ég tek undir með honum: Þetta verður fyrst og fremst leyst á framboðshliðinni. En hljótum við ekki að hafa ákveðnar áhyggjur af því, þrátt fyrir margar mikilvægar aðgerðir ríkisstjórnarinnar til að auka framboð, að til þess að byggja þær íbúðir þarf mikinn mannafla? (Forseti hringir.) Í augnablikinu virðist vera, eins og hæstv. seðlabankastjóri sagði fyrir ekki löngu síðan, að allir sem geta haldið á hamri séu með hamar í hönd núna. (Forseti hringir.) Það er ekki alveg auðséð að það sé hægt að finna mannafla til að reisa þessar þúsundir íbúða sem hv. þingmaður vísar til. (Gripið fram í.)