fjárlög 2025.
Svarið við spurningunni er jú, jú, við erum það að sjálfsögðu og höfum ekkert hvikað frá því að vinna markvisst og ég vil segja á grundvelli bestu gagna að því að ná betri og meiri árangri á þessu sviði. Ég hlýt samt sem áður í tilefni af ábendingu um nýlegar mælingar varðandi óleiðréttan launamun að vekja athygli á því að frá því að þessi ríkisstjórn tók við hefur hann dregist mjög hressilega saman, frá því að vera um 15% árið 2017 og vera kominn undir 10% samkvæmt þessari nýjustu mælingu. Þetta er samt sem áður eitthvað til að veita athygli og hugsa um og leita skýringa á. Mér finnst að við eigum líka að spyrja okkur: Hvernig lítur launamunurinn út leiðréttur? Óleiðréttur launamunur segir ákveðna sögu eins og hv. þingmaður vék að og Hagstofan hefur bent á að það geti skipst dálítið eftir tegundum starfa þar sem eru svona karllægar stéttir sem virðast vera með hærri laun en þá á eftir að leiðrétta fyrir vinnutíma, yfirvinnu, vaktaálagi og öðrum slíkum þáttum sem kunna að koma þar inn í myndina. En í stuttu máli þá höfum við viljað eiga gott samstarf við vinnumarkaðinn. Ég hef ekki fundið fyrir öðru en að bæði atvinnulífið á Íslandi og allur opinberi geirinn sé nokkuð samstiga í þessu. Við höfum viljað efla getu stjórnkerfisins til að afla gagna og greina, taka þetta með í umræðu um launaþróun í landinu, þannig að verkefninu er alls ekki lokið í mínum huga heldur heldur það áfram.