155. löggjafarþing — 3. fundur,  12. sept. 2024.

fjárlög 2025.

1. mál
[16:55]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Forseti. Ég þakka svarið. Þegar við förum að festa okkur í því að tala um leiðrétta og óleiðrétta launamuninn þá verð ég alltaf hræddur um að við drögum úr umfangi vandans vegna þess að leiðrétti launamunurinn er bara ekkert mikill hluti. Þar er komið ákveðið kerfi utan um, við erum með jafnlaunavottun og alls konar sem er að færa leiðrétta launamuninn í miklu betra horf. Óleiðrétti launamunurinn endurspeglar hins vegar kynskipta vinnumarkaðinn sem er miklu flóknara viðfangsefni. Þar langar mig að spyrja hæstv. ráðherra vegna þess að þar ber ríkisstjórnin ekki bara ábyrgð í gegnum samstarf við aðila vinnumarkaðarins eða reglusetningu heldur beina ábyrgð í landi þar sem 43% kvenna á vinnumarkaði starfa hjá hinu opinbera, borið saman við aðeins 15% karla á vinnumarkaði: Er ekki kominn tími til að endurskoða það (Forseti hringir.) hvernig hið opinbera kemur fram við hefðbundnar kvennastéttir?(Forseti hringir.) Er ekki kominn tími til að hætta að fara fram á afslátt af launum kvenna?